Umsókn um afreks- og hvatningarstyrk

Markmið afreks- og hvatninarstyrksins er að styðja ungt afreksfólk með lögheimili í Eyjafjarðarsveit til þátttöku í viðurkenndum alþjóðlegum verkefnum á sviði íþrótta og lista og mæta hluta af ferðakostnaði vegna slíkrar þátttöku. Styrkurinn er hvatningar- og viðurkenningarstyrkur en ekki almennur tómstundastyrkur. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 14 – 21 ára á því almanaksári sem verkefni fer fram sem og eiga lögheimili í Eyjafjarðarsveit við umsókn og þegar verkefni fer fram. Velferðar- og menningarnefnd fer yfir allar umsóknir en úthlutað er einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er 1. nóvember ár hvert.

Ítarleg lýsing á verkefni s.s. á vegum hvers er farið, hvert var farið, í hversu marga daga, undirbúningur ofl.