Jógastyrkur, mantra og gongslökun í yurtinu á Vökulandi

Styrkjandi og liðkandi jóga og gongheilun eftirfarandi þriðjudaga frá 6. janúar til 12.maí 2026.
Engin þekking eða kunnátta nauðsynleg.

Tíminn samanstendur af 50 mín. mjúku jógaflæði inn og úr jógastöðum (asana), öndun (pranayama) möntru ( 5-10mín.) og 20 mín. gongheilun/slökun (Savasana).

Með jógaiðkun styrkist jafnvægið í innkirtlakerfinu, taugakerfinu, vöðvum og stoðkerfi, ónæmiskerfi og blóðrás.
Jóga viðheldur liðleika og styrk.
Með því að hægja á öndun þá róast kerfið og eins konar hugleiðsluástand skapast í jógastöðunum, einbeiting og jafnvægi í líkama, tilfinningum og huga.
Jóga opnar þannig fyrir sálartengingu, þar sem við skynjum okkur tengd og í einingu við allt.
Skráning í tímann er nauðsynleg hjá: solveighar@gmail.com og í s. 663-0498

Hvað er mantra?

Mantra er endurtekið orð eða orðaröð sem við notum til að hjálpa huganum við að ná einbeitingu og til að lyfta huganum og okkur sjálfum upp á hærri tíðni
Möntrur efla tíðni hugans og róa hann um leið. Með því að koma jafnvægi á hug og hjarta skapast ró og skýrleiki. Mantran getur hljómað innra með manni eða verið sungin.
MANTRA: MAN þýðir hugur og hjarta, TRA þýðir vernd frávarp,bylgjur