Deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu að Leifsstöðum 2, Eyjafjarðarsveit – kynning skipulagstillögu á vinnslustigi

Fréttir Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 3. júní sl. að vísa skipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu á Leifsstöðum 2 í kynningarferli skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan tekur til byggingar tveggja íbúðarhúsa, 1500 fm viðbyggingar við hótel, þriggja frístundahúsa, tíu gistihýsa og aðstöðuhúss. Auk þess er gert ráð fyrir tjaldsvæði, götum milli húsa og landmótun á svæðinu.

Deiliskipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 7. júní og 25. júní 2021 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Meðan á kynningu stendur gefst almenningi kostur á að koma ábendingum vegna skipulagstillögunnar á framfæri við skipulags- og byggingar fulltrúa sveitarfélagsins.

Opið hús vegna kynningarinnar fer fram á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, mánudaginn 14. júní milli kl. 12:00 og 15:00. Opið hús fer fram í samræmi við gr. 4.6.1. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og mun skipulagsfulltrúi vera viðstaddur og veita upplýsingar um skipulagstillöguna og taka við ábendingum.

Drög að deiliskipulagi og umhverfisskýrslu
Skýringaruppdráttur
Deiliskipulagsuppdráttur

Skipulags- og byggingarfulltrúi