Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í gær, fimmtudag, við hátíðlega athöfn i Herkastalanum.
Verðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi foreldrastarf eða verkefni sem stuðla sérstaklega að öflugu samtarfi heimila og skóla.
Verkefnið Sveitasæla hlaut foreldraverðlaunin að þessu sinni en verkefnið býður nemendum á unglingastigi tækifæri til að taka þátt í daglegum bústörfum á bænum Hrafnagili.
Verkefnið er svo sannarlega eftirtektavert og hafa nemendur Hrafnagilsskóla með því fengið tækifæri til að kynnast hinum ýmsu verkum sem búrekstri fylgja. Verkefnið smellpassar inn í ný innleidda menntastefnu Eyjafjarðarsveitar þar sem það eykur tengsl skóla og atvinnulífs á svæðinu.
Við óskum Hrafnagisskóla, Óðni kennara og Berglindi og Jóni á Hrafnagili til hamingju með vel verðskuldaða viðurkenningu.