Rafrænir reikningar

Eyjafjarðarsveit stefnir að því að taka eingöngu við rafrænum reikningum vegna kaupa á vörum og þjónustu. Markmiðið er að einfalda móttöku og vinnslu reikninga, draga úr handvirkri skráningu og stuðla að öruggari og skilvirkari stjórnsýslu. Reikningar skulu vera í samræmi við gildandi staðla fyrir rafræna reikninga, þar á meðal Peppol BIS Billing 3.0, sem byggir á evrópska staðlinum EN 16931.

Birgjar sem nota bókhalds- eða sölukerfi sem styður rafræna reikninga skulu senda reikninga beint úr sínu kerfi með rafrænni skeytamiðlun. Einstaklingar og smærri birgjar sem ekki eru með bókhalds- eða sölukerfi sem getur sent rafræna reikninga geta notað reikningagátt Eyjafjarðarsveitar.

Reikningagátt Eyjafjaraðrsveitar - Rafrænir reikningar

Í gáttinni er hægt að skrá reikning á einfaldan hátt og senda hann rafrænt til sveitarfélagsins.

Mikilvægt er að á reikningi komi skýrt fram hvað er verið að innheimta fyrir og hver tengiliður eða kaupandi hjá Eyjafjarðarsveit er. 

Fylgigögn, svo sem tímaskýrslur, sundurliðanir eða önnur gögn sem tengjast reikningnum, skulu fylgja reikningnum eftir því sem við á.

Kennitala Eyjafjarðarsveitar er 410191-2029

Síðast uppfært 09. september 2026
Getum við bætt efni síðunnar?