Samstöðutónleikar vegna endurhæfingarinnar á Kristnesi

Þetta skal amk ekki gerast þegjandi og hljóðalaust! Hópur sem vill endurhæfinguna áfram á Kristnesi stendur að þessum tónleikum. Í hópnum eru endurhæfingarlæknar, sjúkraþjálfara og annað starfsfólk Kristnesspítala ásamt velunnurum. Exton lánar okkur hljóðkerfi og allir þessi dásamlegu listamenn gefa vinnuna sína! Öll velkomin - klædd eftir veðri því þetta eru útitónleikar sunnan við aðalbygginguna. Frjáls framlög vel þegin til að borga hljóðmanni.