Íþrótta- og tómstundastyrkur barna

Eyjafjarðarsveit veitir foreldrum/forráðamönnum barna og ungmenna á aldrinum 6-17 ára styrki vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar. Meginmarkmið íþrótta- og tómstundastyrkja er að stuðla að aukinni hreyfingu og félagsþátttöku barna í sveitarfélaginu. Styrkur er veittur vegna æfinga- og þátttökugjalda fyrir börn á aldrinum 6-17 ára með lögheimili í Eyjafjarðarsveit. Styrkhæft er hvers konar reglulegt íþrótta- og tómstundastarf. Fjárhæð styrks er ákveðin ár hvert í sveitarstjórn að fengnum tillögum frá íþrótta- og tómstundanefnd. 

Styrkupphæð árið 2026 er 60.000 kr.

Athugið að frá og með janúar 2026 er ekki um beingreiðslur til forráðamanna að ræða, heldur hafa forráðamenn rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til niðurgreiðslu á þátttöku- og æfingagjöldum.

• Forráðamenn skrá iðkendur í Abler kerfið í gegnum heimasíðu viðkomandi félags.

• Í skráningarferlingu, þar sem er m.a. gengið frá greiðslu námskeiðs geta forráðamenn valið að ráðstafa styrk iðkandans hjá viðkomandi félagi/deild/fyrirtæki rafrænt.

• Ekki er hægt að ráðstafa hærri upphæð til félags en námskeiðið kostar. Ef upphæð námskeiðs er hærri en ráðstöfunin er mismunur greiddur til félagsins.

• Þegar forráðamaður staðfestir þátttöku barns fær viðkomandi félag/deild/fyrirtæki og Eyjafjarðarsveit staðfestingu þar um.

• Eyjafjarðarsveit greiðir frístundastyrki til viðkomandi íþróttafélag/deild/fyrirtækis í byrjun hvers mánaðar fyrir skráða styrki mánuðinn á unda.

• Í kvittun til þátttakenda um námskeiðskostnað skal félag tilgreina hlut sveitarfélagsins í greiðslu vegna námskeiðsgjaldsins.

• Umsóknartímabilið er almanaksárið. Ónýttir frístundastyrkir flytjast/geymast ekki milli ára. 

Listi yfir íþrótta- og tómstundafélög og fyrirtæki sem hægt er að nýta íþrótta- og tómstundastyrki Eyjafjarðarsveitar hjá:

  • Ungmennafélagið Samherjar
  • Golfklúbbur Akureyrar
  • KA - Blakdeild
  • KA - Fimleikadeild
  • KA - Handknattleiksdeild
  • KA - Knattspyrnudeild
  • KA - Júdódeild
  • Skautafélag Akureyrar - Listhlaupadeild
  • Skautafélag Akureyrar - Íshokkídeild
  • Skátafélagið Klakkur
  • Skíðafélag Akureyrar
  • Ungmennafélag Akureyrar
  • Þór - Handknattleiksdeild
  • Þór - Hnefaleikadeild
  • Þór - Píludeild
  • Þór - Knattspyrnudeild
  • Þór - Körfuknattleiksdeild
  • Þór - Taekwondo deild
  • Þór/KA 
  • 600 Klifur
  • BJJ Atlantic AK
  • Braggaparkið
  • DSA - Dancestudíó Alice
  • STEPS Dancecenter ehf.
  • Bjarg Líkamsrækt
  • Norður Akureyri
  • World Class

Ný félög og fyrirtæki:

Nýjir aðilar sem óska eftir að taka við frístundastyrk Eyjafjarðarsveitar þurfa að sækja um það til forstöðumanns íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar (itrottamidstod.forstodumadur@esveit.is) með nánari upplýsingum um frístundastarf viðkomandi aðila og ósk um að tengjast við kerfi Eyjafjarðarsveitar innan Abler skráningarkerfisins. Tenging við Abler-kerfið er skilyrði fyrir því að geta tekið við frístundastyrk.

------

Þau sem stunda nám við Tónlistarskóla Eyjafjarðar og óska eftir því að nýta íþrótta- og tómstundastyrkinn sinn þar þurfa að sækja um á viðkomandi umsóknarblaði:

Umsókn um íþrótta- og tómstundastyrk fyrir nám hjá Tónlistarskóla Eyjafjarðar

Síðast uppfært 23. janúar 2026
Getum við bætt efni síðunnar?