Umhverfisviðurkenningar fyrir 2007
Umhverfisnefnd hefur afhent umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2007. Að þessu sinni hlutu viðurkenningu fyrir snyrtilega umgengni á
bújörð, skógrækt og áhuga á varðveislu minja, þau Leifur Guðmundsson og Þórdís Karlsdóttir eigendur og
ábúendur í Klauf. Eigendur Samkomugerðis II, Baldvin Birgisson og Hanna María Skaftadóttir, fengu viðurkenningu fyrir metnaðarfulla
endurbyggingu eldra húss ræktun umhverfis.
14.01.2008



