Móttaka umsóknar ORF Líftækni hf. um leyfi til útiræktunar á erfðabreyttum plöntum - Klauf
Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn frá ORF Líftækni hf. um leyfi til tilraunaræktunar utanhúss á erfðabreyttu byggi (Hordeum vulgare) á Klauf í Eyjafjarðarsveit.
Er hér gefinn kostur á að koma að athugasemdum um ofangreinda umsókn til útiræktunar á erfðabreyttu byggi. Frestur til að skila slíkum athugasemdum er til lok dags 19.maí eða 30 dagar frá birtingu fréttar. Merkja skal umsagnir UST202401-451.
22.04.2024
Fréttir