Auglýsingablaðið

1316. TBL 23. desember 2025

Auglýsingablað 1316. tbl. 16. árg. þriðjudaginn 23. desember 2025.



Jólakveðjur

Sendum öllum íbúum Eyjafjarðarsveitar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
Sveitarstjórn og starfsfólk á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.

 


Opnunartími skrifstofu um hátíðirnar

Opið verður kl. 10:00-14:00 á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar mánudagana og þriðjudagana 22.-23. og 29.-30. desember.
Lokað verður föstudaginn 2. janúar 2026.
Opið verður á auglýstum opnunartíma skrifstofu kl. 10:00-14:00 frá og með mánudeginum 5. janúar 2026.

 

Helgihald á jólum í kirkjum Eyjafjarðarsveitar


Aðfangadagur jóla 24. desember
Aftansöngur í Grundarkirkju kl. 22:00. Kirkjukór Grundarsóknar syngur undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar organista. Einsöngur: Inga Bára Ragnarsdóttir. Prestur Jóhanna Gísladóttir og meðhjálpari Hjörtur Haraldsson.


Jóladagur 25. desember
Hátíðarmessa í Kaupangskirkju kl. 13:30. Söngfélagar við Kaupangskirkju syngja undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur organista. Prestur Jóhanna Gísladóttir og meðhjálpari Hansína María Haraldsdóttir.


Annar dagur jóla 26. desember
Hátíðarmessa í Munkaþverárkirkju kl. 13:00. Kirkjukór Grundarsóknar syngur undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar organista. Prestur Aðalsteinn Þorvaldsson og meðhjálpari Kristín Kolbeinsdóttir.

 


Flugeldasala Hjálparsveitarinnar Dalbjargar í Hrafnagilsskóla
Að venju mun Hjálparsveitin Dalbjörg vera með flugeldasölu í Hrafnagilsskóla.

Opnunartímar verða sem hér segir:
28. desember kl. 16-22
29.-30. desember kl. 10-22
31. desember kl. 9-16
5. janúar kl. 19-21. (Dalborg)

Flugeldasalan er okkar stærsta fjáröflun og við hvetjum sem flesta til að styrkja björgunarsveitina í okkar heimabyggð.

Við tökum einnig við frjálsum framlögum frá þeim sem ekki vilja styrkja í formi flugelda, bæði er hægt að finna upplýsingar á heimasíðunni okkar, dalbjorg.is eða mæta á staðinn og renna korti í gegnum posann, taka spjallið og fá sér kaffisopa.

Við hlökkum til að taka á móti sveitungum okkar og öðrum velunnurum!
Kveðja, Hjálparsveitin Dalbjörg.

 


Jólaball Hjálparinnar
Árlegt jólaball Hjálparinnar verður haldið í Funaborg laugardaginn 27. des. kl. 13:30-15:30.
Jólasveinar mæta og dansað í kringum jólatréð við undirleik heiðurshjónanna í Hólshúsum. Kaffihlaðborð að kvenfélagssið.
Hlökkum til að sjá sem flesta.

 


Eyvindi
og jólablaði Lionsklúbbanna í Eyjafjarðarsveit var dreift um alla sveit og í póstkassana í hverfinu fimmtudaginn 18. desember.
Ef einhver hefur orðið útunda þá var það alveg óvart og endilega hafið þá samband við skrifstofu Eyjafjarðarsveitar milli kl. 10-14 í síma 463-0600.
Með kærri jólakveðju, Vitaðsgjafi og Sif.

 


Opnunartími Íþróttamiðstöðvar um hátíðarnar
Þorláksmessa kl. 6.30-14
Aðfangadagur kl. 9-11
Jóladagur lokað
Annar í jólum lokað
27. des. kl. 10-19
28. des. kl. 10-19
29. des. kl. 6.30-8 og 14-22
30. des. kl. 6.30-8 og 14-22
31. des. lokað
1. jan. lokað

Hafið það sem best um hátíðarnar og sjáumst hress í sundi.
Starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar.

Getum við bætt efni síðunnar?