Auglýsingablað 1318. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 6. janúar 2026.

Allir velkomnir í bókaklúbb á bókasafni Eyjafjarðarsveitar í vetur
Næsti klúbbur er núna fimmtud. 8. jan. kl. 16:30.
Hlökkum til að sjá ykkur á bókasafninu 🙂
Kvenfélagið Iðunn.

Ný námskeið hjá Litlu yogastofunni
Um leið og ég óska ykkur gleðilegs nýs árs, þakka ég fyrir samfylgdina í Hjartanu á síðasta ári.
Á nýju ári býður Litla yogastofan námskeiðið Liðka-styrkja-slaka sem verður einu sinni í viku og jóga nidra einu sinni í mánuði. Allar nánari upplýsingar eru á Facebook síðu Litlu yogastofunnar https://www.facebook.com/litlayogastofan/
Verið velkomin í jóga í Hjartanu í Hrafnagilsskóla - Ingileif