Auglýsingablað 1319. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 13. janúar 2026.
Sveitarstjórnarfundur
668. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtud. 15. janúar og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.


Bókaklúbbur Iðunnar opinn fyrir öll!
8. janúar ræddum við um STEININN og FARANGUR eftir Ragnheiði Gestsdóttur.
Góðir dómar hjá lesendum - sniðugar hugmyndir og vel unnar fléttur i frásögnunum.
Spurningar vakna, hvað gerist næst, kemur framhald i næstu bókum?
Á næstkomandi fundi bókaklúbbsins 5.febrúar fjöllum við um bækur eftir Nönnu Rögnvaldardóttur. Þegar sannleikurinn sefur og Mín er hefndin.
Velkomin á bókasafnið 5. febrúar klukkan 16.30.

Vellíðunarsetrið á Vökulandi er staðsett í hjarta Eyjafjarðarsveitar. Setrið býður uppá ýmsa vellíðunar og hæglætis viðburði og námskeið fyrir hópa, fjölskyldur og einstaklinga. Þar er einnig til útleigu íbúð með gistingu fyrir allt að 9 manns.
Dagskrá Vorannar 2026:
Nýársfögnuður með hugleiðslu og gongslökun kl. 18-19.15
- 6. janúar-19.maí Jóganámskeið og gongslökun þriðjudaga kl. 17-18:15
- 18. janúar Hugleiðsla og Gongslökun á nýju tungli kl. 13:00
- 27. janúar viðburður með Helenu Adbro orkuvinna. Lært að vinna með pendúl. Hugleiðsla með hreinu kakaó og hljóðheilun/slökun í lokin
- 23-29. janúar Helena Adbro með einkatíma og orkuvinnu
- 17. febrúar Hugleiðsla og gongslökun á nýju tungli kl. 18:30
- 3. mars Hugleiðsla og gongslökun á fullu tungli kl. 18:30
- 12.-15.mars Ayurveda Vorhreinsun, námskeið með Heiðu, Sólveig og Tinnu
- 21. mars Vorjafndægur - Hugleiðsla til vorsins, lifandi hljóðheilun, möntrusöngu og kakó kl. 16-18:00
Vökuland Wellness

Foreldrar og börn frá 4 ára aldri
Hjá Vellíðunarsetrinu á Vökulandi verður boðið upp á nýjung fyrir foreldra með börn/ungt fólk.
Foreldrar geta komið með börn frá 4 ára aldri og átt saman góða stund með hljóðfærum, sögustund og ævintýralega upplifun í tjaldinu / yurtinu á Vökulandi.
Takmarkaður fjöldi er í hvern tíma. Byrjar í febrúar.
Áhugasamir hafið samband beint við Sólveigu hjá solveighar@gmail.com og s. 663-0498.