Auglýsingablað 1320. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 20. janúar 2026.

Ath. linkinn á miðasöluna er hægt að smella á í auglýsingunni á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar eða á facebooksíðunni: Þorrablót Eyjafjarðarsveitar.

Eyjafjarðarsveit tekur upp Hvata/Abler frístundakerfið
Frá og með áramótum hefur Eyjafjarðarsveit tekið upp notkun Hvata/Abler frístundakerfisins til að halda utan um íþrótta- og tómstundastyrki barna. Með breytingunni er horfið frá beingreiðslum til forráðamanna gegn framvísun kvittana og í staðinn geta þeir ráðstafað styrknum rafrænt til niðurgreiðslu æfingagjalda í gegnum Abler frístundakerfið hjá íþróttafélögum meðal annars hjá félögum á borð við Umf. Samherjum, Þór, KA og Skautafélagi Akureyrar.
Ný félög og fyrirtæki sem hyggjast taka við frístundastyrk Eyjafjarðarsveitar þurfa að sækja um tengingu við Hvata/Abler-kerfið hjá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar Karli Jónssyni itrottamidstod.forstodumadur@esveit.is
Nánar er hægt að lesa um íþrótta- og tómstundastyrki barna á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.

Árshátíð unglingastigs
Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 23. janúar nk. Hún hefst kl. 19:30 með leiksýningu og endar á balli í fjölnotasalnum milli leik- og grunnskóla kl. 23:00.
Skólabílar aka heim að balli loknu.
Nemendur í 8., 9. og 10. bekk sýna stytta útgáfu af söngleiknum ,,Grease” og Ágúst Þór Brynjarsson ásamt kennurum á unglingastigi leikstýra. Auk þess að leika, syngja og dansa í sýningunni sjá nemendur um búninga, förðun, leikmynd, leikskrá og alla tæknivinnu.
Einnig verður boðið upp á tónlistaratriði.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðra en nemendur unglingastigs) og frítt er fyrir þá sem yngri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu og það verður opin sjoppa.
Ágóðinn rennur allur til nemenda, bæði í ferðasjóð 10. bekkjar og til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og fleira fyrir nemendur unglingastigs.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur á unglingastigi

Iðunnarkvöld – hvað er það???
Þá gefst Iðunnarkonum tækifæri til að hittast og gera eitthvað saman til tilbreytingar. Í kvöld þriðjudaginn 20. janúar kl. 20 verður bókakvöld í fundarherberginu upp á 2. hæð í Laugarborg, dyrnar hægra megin að austan. Nýjar konur velkomnar.
Bókaormarnir í félaginu segja frá bókum sem þeir hafa lesið að undanförnu, hvort sem þær hafa verið skemmtilegar eða síður en svo! Allar konur sem mæta eru hvattar til að hafa með sér bækur sem þær hafa verið að lesa undanfarna mánuði og segja frá þeim.
Kaffi og smá kruðerý á boðstólum.
Kvenfélagið Iðunn.
Kíktu á okkur á facebook.