Auglýsingablað 1321. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 27. janúar 2026.

Sveitarstjórnarfundur
669. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtud. 29. janúar og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

Spilavist Funa
3ja kvölda spilavist verður haldin í Funaborg 9. feb., 16. feb., 23. feb. byrja kl. 20:00.
Pylsur og nammi í sjoppu í hléi.
Vinningar fyrir 1.-3. sæti og setuverðlaun öll kvöld og svo heildarverðlaun fyrir síðasta kvöldið.
Endilega takið kvöldin frá.
Allir velkomnir.
Hestamannafélagið Funi.

Messa í Kaupangskirkju sunnudaginn 1. febrúar kl. 13.30
Verið velkomin í kirkju næstkomandi sunnudag, tilvalin stund til að kyrra hugi og hjörtu eftir gott blót! Söngfélagar við Kaupangskirkju syngja undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur organista. Prestur er Jóhanna Gísladóttir og meðhjálpari María Haraldsdóttir.
Helgihald í kirkjum Eyjafjarðarsveitar eftir áramót og til sumars
1. febrúar kl. 13.30 Messa í Kaupangskirkju
15. febrúar kl. 13.00 Handverksmessa í Saurbæjarkirkju
8. mars kl. 13.00 Fjölskyldumessa í Grundarkirkju
22. mars kl. 13.00 Messa í Möðruvallakirkju
2. apríl (skírdagur) kl. 14.00 Fermingarmessa í Hólakirkju
3. apríl (föstudagurinn langi) kl. 11.00 Helgistund í Munkaþverárkirkju
5. apríl (páskadagur ) kl. 11.00 Hátíðarmessa í Grundarkirkju
5. apríl kl. 13.30 Hátíðarmessa í Kaupangskirkju
11. apríl kl. 11.00 Fermingarmessa í Kaupangskirkju
24. maí (hvítasunnudagur) kl. 11.00 Fermingarmessa í Grundarkirkju
7. júní kl. 13.00 Sumarmessa í Hólakirkju