Auglýsingablað 1322. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 3. febrúar 2026.

Framsókn - fundur miðvikudaginn 4. febrúar kl. 20:30 í Félagsborg
Kosning fulltrúa á flokksþingið. Þeir sem gefa kost á sér tilkynni það til Kristínar Thorberg í síma 863-0086.
Félagar, fjölmennið á fundinn.

Bókaklúbbur Iðunnar opinn fyrir öll!
Í byrjun janúar ræddum við um STEININN og FARANGUR eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Góðir dómar hjá lesendum - sniðugar hugmyndir og vel unnar fléttur i frásögnunum.
Spurningar vakna, hvað gerist næst, kemur framhald i næstu bókum?
Á næsta fundi bókaklúbbsins þann 5. febrúar, fjöllum við um bækur eftir Nönnu Rögnvaldardóttur; Þegar sannleikurinn sefur og Mín er hefndin.
Velkomin á bókasafnið 5. febrúar klukkan 16:30.

Spilavist Funa
3ja kvölda spilavist verður haldin í Funaborg 9. feb., 16. feb., 23. feb. byrja kl. 20:00.
Pylsur og nammi í sjoppu í hléi.
Vinningar fyrir 1.-3. sæti og setuverðlaun öll kvöld og svo heildarverðlaun fyrir síðasta kvöldið.
Endilega takið kvöldin frá. Allir velkomnir.
Hestamannafélagið Funi.

Kæru Funafélagar
Aðalfundur Funa verður haldinn í Funaborg 10. febrúar kl. 20:00, dagskrá fundarins venjuleg aðalfundarstörf.
Þeir sem hafa áhuga á að starfa í nefndum/stjórn félagsins endilega sendið póst/skilaboð á Hafdísi.
Veitingar í boði félagsins. Nýir félagar velkomnir.
Stjórn Funa.

Aðalfundur Kirkjukórs Grundarsóknar verður haldinn í Laugarborg mánudaginn 16. febrúar kl. 21:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.

Gamanleikurinn Tom, Dick og Harry, eftir breska gamanleik höfundinn Ray Cooney og son hans Michael Cooney, fer á svið hjá Freyvangsleikhúsinu. Frumsýning 20. febrúar kl. 20:00. Miðasala á Tix.is og í síma 857-5598.
Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu en þau eiga von á konu frá ættleiðingarskrifstofunni. Bræður Toms, þeir Dick og Harry, eru ekki alveg skörpustu hnífarnir í skúffunni og eru þeir með allskonar ráðabrugg og hugmyndir til þess að einfalda lífið, bæði fyrir sjálfan sig og fyrir Tom og Lindu. Inn í þetta fléttast svo ýmsar persónur sem flækja málin. Því má segja að það fari kannski ekki allt sem skyldi og flækjast málin fyrir Lindu og þá kannski ekki síst fyrir Tom
Gamanleikurinn er í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar og er hann Freyvangsleikhúsinu vel kunnugur þar sem þetta er fimmta verkið sem hann leikstýrir hjá okkur.