Auglýsingablað 1323. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 10. febrúar 2026.

Sveitarstjórnarfundur
670. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtud. 12. febrúar og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

Árshátíð yngsta stigs Hrafnagilsskóla 2026
Árshátíðin verður haldin í Laugarborg föstudaginn 13. febrúar milli klukkan 13:00 og 14:30.
Nemendur yngsta stigs sýna stytta útgáfu af leikritinu um spýtustrákinn Gosa, forvitinn prakkara sem á erfitt með að feta hinn rétta veg.
Að leikritinu loknu stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðra en sýnendur) og frítt fyrir þá sem eru yngri.
Hægt er að greiða með greiðslukorti.
Allur ágóði af miðasölu rennur í nemendasjóð og nýtist t.d. í að greiða lyftugjöld í skíðaferð og vorferð 4. bekkinga.
Ekki verður boðið upp á veitingar á árshátíðinni en nemendur fá poka með poppi o.fl. þegar þeir fara heim.
Skólabílar keyra ekki að árshátíð lokinni og frístund er opin milli kl. 14:30 og 16:00 fyrir þá sem þar eru skráðir.
Öll eru hjartanlega velkomin.
Nemendur í 1.- 4. bekk í Hrafnagilsskóla.

Bókasafnið
Vegna vetrarleyfis verður bókasafnið lokað dagana 18. 19. og 20. febrúar nk.
Safnið opnar aftur þriðjudaginn 24. febrúar og þá verður opið eins og venjulega ;
Þriðjudaga kl. 14-17
Miðvikudaga kl. 14-17
Fimmtudaga kl. 14-17
Föstudaga kl. 14-16

Kæru Funafélagar – Aðalfundur í kvöld 10. febrúar kl. 20:00 í Funaborg
Dagskrá fundarins: venjuleg aðalfundarstörf.
Þeir sem hafa áhuga á að starfa í nefndum/stjórn félagsins endilega sendið póst/skilaboð á Hafdísi.
Veitingar í boði félagsins. Nýir félagar velkomnir.
Stjórn Funa.

Kvenfélagið Hjálpin boðar til aðalfundar, laugardagskvöldið 14. febrúar kl. 20:00 í Sólgarði.
Venjulega aðalfundarstörf. Allir velkomnir.
Stjórnin.

Handverksmessa í Saurbæjarkirkju sunnudaginn 15. febrúar kl. 13:00
Hin árlega og áhugaverða handverksmessa verður á sínum stað í Saurbæjarkirkju næstkomandi sunnudag. Ræðukonan er að þessu sinni sveitungi okkar Bryndís Símonardóttir handverkskona með meiru. Kirkjukór Grundarsóknar syngur undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Prestur Jóhanna Gísladóttir og meðhjálpari Auður Thorberg.
Vöfflukaffi á Smámunasafninu í boði sóknarnefndar að messu lokinni.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Aðalfundur Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar verður haldinn miðvikudaginn 25. febrúar, kl. 18:30 á Brúnum. Venjuleg aðalfundarstörf. Hvetjum sem flesta til að mæta og láta til sín taka. Boðið verður upp á súpu og brauð! Gott að merkja við á Facebook viðburðinn svo við getum áætlað súpumagn.
Stjórnin.