Auglýsingablaðið

1324. TBL 17. febrúar 2026

Auglýsingablað 1324. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 17. febrúar 2026.


Gamanleikurinn Tom, Dick og Harry
, eftir breska gamanleik höfundinn Ray Cooney og son hans Michael Cooney, fer á svið hjá Freyvangsleikhúsinu. Frumsýning 20. febrúar kl. 20:00. Miðasala á Tix.is og í síma 857-5598.

Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu en þau eiga von á konu frá ættleiðingarskrifstofunni. Bræður Toms, þeir Dick og Harry, eru ekki alveg skörpustu hnífarnir í skúffunni og eru þeir með allskonar ráðabrugg og hugmyndir til þess að einfalda lífið, bæði fyrir sjálfan sig og fyrir Tom og Lindu. Inn í þetta fléttast svo ýmsar persónur sem flækja málin. Því má segja að það fari kannski ekki allt sem skyldi og flækjast málin fyrir Lindu og þá kannski ekki síst fyrir Tom

Gamanleikurinn er í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar og er hann Freyvangsleikhúsinu vel kunnugur þar sem þetta er fimmta verkið sem hann leikstýrir hjá okkur.

 


Fiskikvöld KKE
Karlakór Eyjafjarðar efnir til stórveislu að þessu sinni í Hlíðarbæ Hörgársveit, föstudaginn 20. febrúar kl.19:00.
Þar verður á boðstólnum siginn fiskur með hamsatólg og nýbökuðu rúgbrauði ásamt Þórustaðakartöflum.
Söngur, grín og mikið gaman. Verð kr. 4.500,-
Allir eru velkomnir.

Panta þarf miða í síma 864-7096 Jón eða 661-7627 Páll.
Karlakór Eyjafjarðar.

 


Kaffihlaðborð í Laugarborg
Karlakór Eyjafjarðar verður með stórglæsilegt kaffihlaðborð í Laugarborg nk. sunnudag, þann 22. febrúar (konudaginn), kl. 14:00.
Kórinn syngur nokkur lög og að því loknu gæðum við okkur á kaffi og krásum.

Frítt fyrir 6 ára og yngri, 1.000 kr. fyrir 7 til 14 ára og 4.000 kr. fyrir 15 ára og eldri.

Söngur og gleði.
Allir eru velkomnir.

 


Spilavist Funa
Spilavistin, síðasta kvöldið er mánudaginn 23. feb. kl. 20:00.
Pylsur og nammi í sjoppu í hléi.

Vinningar fyrir 1.-3. sæti, setuverðlaun og heildarverðlaun fyrir síðasta kvöldið.

Allir velkomnir.
Hestamannafélagið Funi.

 

Aðalfundur Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar verður haldinn miðvikudaginn 25. febrúar, kl. 18:30 á Brúnum. Venjuleg aðalfundarstörf. Hvetjum sem flesta til að mæta og láta til sín taka. Boðið verður upp á súpu og brauð! Gott að merkja við á Facebook viðburðinn svo við getum áætlað súpumagn.

Stjórnin.

 


Næsta námskeið Litlu yogastofunnar
í Hjartanu í Hrafnagilsskóla hefst fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17:00. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Hver tími er 75 mínútur og inniheldur stöður og seríur sem liðka og styrkja líkamann auk þess að tímanum lýkur með leiddri djúpslökun. Allar nánari upplýsingar eru á Facebook síðu Litlu yogastofunnar: https://www.facebook.com/litlayogastofan/

Verið öll velkomin í jóga - Ingileif gsm 897-8737.

Getum við bætt efni síðunnar?