Auglýsingablað 1325. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 24. febrúar 2026.

Sveitarstjórnarfundur
672. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtud. 26. febrúar og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

Aðalfundur Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar verður haldinn miðvikudaginn 25. febrúar, kl. 18:30 á Brúnum. Venjuleg aðalfundarstörf.
Hvetjum sem flesta til að mæta og láta til sín taka. Boðið verður upp á súpu og brauð! Gott að merkja við á Facebook viðburðinn svo við getum áætlað súpumagn.
Stjórnin.

Frá bókaklúbbi Iðunnar
Næsti bókaklúbbsfundur er á bókasafninu fimmtudaginn 5. mars kl. 16:30.
Í janúar lásum við bækur Nönnu Rögnvaldardóttur, Þegar sannleikurinn sefur og Mín er hefndin. Umsögn klúbbsins var að þetta væru miklar örlagasögur. Í samanburði milli þessara tveggja bóka voru klúbbfélagar á því að sú fyrri væri betri en báðar áhugaverðar. Í febrúar erum við að lesa einhverja þriggja bóka Claire Keegan, Smámunir sem þessir, Seint og um síðir eða Fóstur. Allir eru hjartanlega velkomnir.

K-LISTA SÚPUFUNDUR FÉLAGSBORG 5.3.2026 KL. 20:00
Lætur þú þig málefni sveitarfélagsins varða? Vilt þú hafa áhrif? Viltu vinna með góðu fólki?
Þá er málið að drífa sig á súpufund hjá K-listanum fimmtudagskvöldið fimmta mars kl. 20:00!
Við horfum til sveitarstjórnarkosninga í vor og bjóðum áhugasömu fólki um menn og málefni að mæta í Félagsborg og eiga gott spjall við okkur.
Ásta, Siggi og Sigga, núverandi sveitarstjórnarfulltrúar K-listans.

Lionsklúbburinn Sif – Brauðtertufundur!
Miðvikudaginn 11. mars nk. verður fundur hjá Lkl. Sif í Félagsborg kl. 19:30. Þá verða á boðstólum kaffi/te & brauðtertur 😊
Á dagskrá er m.a. fyrirlestur Héðins Svarfdals Björnssonar, félagssálfræðings: „Þarf alltaf að leiðrétta? – Um samtöl sem styðja breytingar.“
Nýjar konur velkomnar.