Auglýsingablað 1326. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 3. mars 2026.

Frá bókaklúbbi Iðunnar
Næsti bókaklúbbsfundur er á bókasafninu fimmtudaginn 5. mars kl. 16:30. Í janúar lásum við bækur Nönnu Rögnvaldardóttur, Þegar sannleikurinn sefur og Mín er hefndin. Umsögn klúbbsins var að þetta væru miklar örlagasögur. Í samanburði milli þessara tveggja bóka voru klúbbfélagar á því að sú fyrri væri betri en báðar áhugaverðar. Í febrúar erum við að lesa einhverja þriggja bóka Claire Keegan, Smámunir sem þessir, Seint og um síðir eða Fóstur.
Allir eru hjartanlega velkomnir.

K-LISTA SÚPUFUNDUR FÉLAGSBORG 5.3.2026 KL.20
Lætur þú þig málefni sveitarfélagsins varða? Vilt þú hafa áhrif?
Viltu vinna með góðu fólki?
Þá er málið að drífa sig á súpufund hjá K-listanum fimmtudagskvöldið fimmta mars kl. 20:00!
Við horfum til sveitarstjórnarkosninga í vor og bjóðum áhugasömu fólki um menn og málefni að mæta í Félagsborg og eiga gott spjall við okkur.
Ásta, Siggi og Sigga, núverandi sveitarstjórnarfulltrúar K-listans.

Helgistund í Grundarkirkju sunnudaginn 8. mars kl. 13:00
Prestur Jóhanna Gísladóttir og organisti Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Bjarkey Sigurðardóttir sópransöngkona syngur.
Meðhjálpari Hjörtur Haraldsson.
Verið öll velkomin!

Lionsklúbburinn Sif – Brauðtertufundur!
Miðvikudaginn 11. mars nk. verður fundur hjá Lkl. Sif í Félagsborg kl. 19:30. Þá verða á boðstólum kaffi/te & brauðtertur 😊
Á dagskrá er m.a. fyrirlestur Héðins Svarfdals Björnssonar, félagssálfræðings: „Þarf alltaf að leiðrétta? – Um samtöl sem styðja breytingar.“
Nýjar konur velkomnar.

Hrossakjötskvöld
Á lendar hár, um brjóstið sver
Og af mér lítið metinn
Skapið stirt og lundin þver
Svo nú skal Eldur étinn.
Við í Karlakór Eyjafjarðar höfum gaman af að gefa fólki að borða. Nú ætlum við að elda saltað hrossakjöt og bera það fram ásamt uppstúf og meðlæti, þann 13. mars, kl. 19.00 í Laugaborg.
Verð 4500 kr. Kórinn syngu nokkur lög.
Miðapantanir í síma 661-7627, Páll eða 864-7096, Jón.
Karlakór Eyjafjarðar.