Auglýsingablaðið

1327. TBL 10. mars 2026

Auglýsingablað 1327. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 10. mars 2026.

 


Lionsklúbburinn Sif – Brauðtertufundur!
Miðvikudaginn 11. mars nk. verður fundur hjá Lkl. Sif í Félagsborg kl. 19:30. Þá verða á boðstólum kaffi/te & brauðtertur 😊

Á dagskrá er m.a. fyrirlestur Héðins Svarfdals Björnssonar, félagssálfræðings: „Þarf alltaf að leiðrétta? – Um samtöl sem styðja breytingar.“

Nýjar konur velkomnar.

 


Sveitarstjórnarfundur
637. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtud. 12. mars og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Árshátíð miðstigs 2026
Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 12. mars kl. 19:00.

Nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna stytta útgáfu af leikritinu um hinn sívinsæla Kardimommubæ.

Auk þess að leika, syngja og dansa í sýningunni sjá nemendur m.a. um leikmynd, leikskrá og tæknivinnu.

Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og síðan verður ball.

Skemmtuninni lýkur kl. 21:15. Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðrir en sýnendur) og frítt er fyrir þá sem yngri eru.

Allur ágóði fer í sjóð sem greiðir niður lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum. Veitingar eru innifaldar í verðinu og sjoppa verður á staðnum.

Athugið að núna verður hægt að greiða með posa.

Öll eru hjartanlega velkomin!

Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla

 


Iðunnarkvöld 18. mars – Súrdeigsbakstur – Takið kvöldið frá
😊
Það verður kynnt hvernig á að baka einfalt hnoðlaust súrdeigsbrauð og svo smakkað á einu slíku.
Staðsetning: kennslueldhús Hrafnagilsskóla
Klukkan: 20:00
Hlökkum til að sjá sem flestar 😊
Nýjar konur velkomnar.
Kvenfélagið Iðunn.

 


Bókaklúbburinn
hittist á bókasafninu 5. mars og ræddi bækur febrúarmánaðar eftir Claire Keegan sem komið hafa út á íslensku; Seint og um síðir, Smámunir sem þessir og Fóstur. Bækurnar fengu þá umsögn að vera vel skrifaðar. Þær lýsa lífi fólks á Írlandi á síðustu öld, þar sem kaþólska kirkjan hefur ægivald, vakir yfir og stýrir lífi fólks í fátæku samfélagi. Klúbbmeðlimum þótti Smámunir sem þessir einstaklega áhrifarík þar sem í bakgrunni er saga ógiftra stúlkna og kvenna sem verða óléttar og eru vistaðar hjá nunnum þar til þær hafa eignast börnin sem eru svo tekin frá þeim og gefin til ættleiðingar.

Bók mars mánaðar er Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafsdóttur.
Síðasti fundur vetrarins er ráðgerður 9. apríl.

Getum við bætt efni síðunnar?