Auglýsingablaðið

1329. TBL 24. mars 2026

Auglýsingablað 1329. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 24. mars 2026.

 


Sveitarstjórnarfundur
674. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtud. 26. mars og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

Helgihald í kirkjum Eyjafjarðarsveitar í dymbilviku og á páskadag


Skírdagur 2. apríl
Fermingarmessa í Hólakirkju kl. 14:00. Fermdir verða Einar Hjalti Steingrímsson og Hafþór Bjarki Óttarsson.
Kirkjukór Grundarsóknar syngur undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Prestur Hildur Eir Bolladóttir og meðhjálpari Sveinn Rúnar Sigmundsson.


Föstudagurinn langi 3. apríl
Helgiganga á vegum hjálparsveitarinnar Dalbjargar. Lagt verður af stað gangandi frá Dalborg í Hrafnagilshverfi kl. 10:00 og gengið á bökkunum inn að Munkaþverárkirkju. Einnig er í boði að þiggja far frá Dalborg kl. 11:00 að kirkjunni og ganga til baka. Þegar göngufólk kemur til kirkju verður þar stutt helgistund. Prestur Aðalsteinn Þorvaldsson og organisti Þorvaldur Örn Davíðsson. Kirkjukór Grundarsóknar syngur. Er stundinni lýkur er gengið til baka í Dalborg þar sem boðið verður upp á vöfflukaffi og kassaklifur kl. 13:00-14:00. Frjáls framlög í styrktarsjóð Dalbjargar.

Páskadagur 5. apríl


Hátíðarmessa í Grundarkirkju kl. 11:00.
Kirkjukór Grundarsóknar syngur. Organisti er Þorvaldur Örn Davíðsson. Prestur Aðalsteinn Þorvaldsson og meðhjálpari Hjörtur Haraldsson.


Hátíðarmessa í Kaupangskirkju kl. 13:30.
Söngfélagar við Kaupangskirkju syngja. Organisti Petra Björk Pálsdóttir. Prestur Aðalsteinn Þorvaldsson og meðhjálpari Hansína María Haraldsdóttir.

 


Vilt þú aðstoð með húsið þitt?
Hús í áskrift hjá Raudi.is er regluleg þjónusta fyrir umhirðu í kringum húsið. Við sjáum um gangstéttaþrif, pallaþrif, kantskurð og fleira í umhirðu svo allt líti vel út allt árið. Þjónustan er einföld, áreiðanleg og sniðin að þínum þörfum. Hentar vel fyrir þá sem vilja hafa hlutina í lagi án þess að hafa fyrir því. Meira inn á Raudi.is
Verð frá 6.990 kr. á mánuði eða Steinar í síma 867-1816.

Getum við bætt efni síðunnar?