Auglýsingablað 1330. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 31. mars 2026.

Melgerðismelar - Flugskýli, Eyjafjarðarsveit – auglýsing deiliskipulagstillögu
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 26.03.2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir flugskýli á Melgerðismelum, skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni felst að afmarkaðar eru fimm nýjar lóðir fyrir flugskýli, hver um sig 1.200 m² að stærð, auk einnar núverandi lóðar sem er 1.540 m². Gert er ráð fyrir byggingarreitum, aðkomu og skilmálum fyrir uppbyggingu á svæðinu. Heimilt verður að reisa eitt flugskýli á hverri lóð, á einni hæð með millilofti, að hámarki 400 m² að grunnfleti og allt að 6,5 m á hæð. Skipulagssvæðið nær yfir um 1,0 ha svæði sunnan núverandi flugskýlis, á milli lendingarstaðar og flugvallar fyrir minni flugvélar. Markmið deiliskipulagsins er að móta heildstæða umgjörð um uppbyggingu flugskýla á svæðinu með afmörkun lóða, skilgreiningu byggingarreita og aðkomu, ásamt skilmálum um mannvirki og landnýtingu.
Skipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmer 1120/2025. Hægt er að skila inn athugasemdum við skipulagstillöguna á Skipulagsgáttinni og er athugasemdafrestur til 15.05.2026. Frekari upplýsingar má nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar.

Laus staða stoðkennara við Hrafnagilsskóla
Stoðkennari á yngsta stigi
Leitað er eftir kennara í 100% starf stoðkennara við Hrafnagilsskóla. Stoðkennari á yngsta stigi er sinnir námsstuðningi við nemendur, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vinnur jafnframt í teymi á yngsta stigi og í stoðteymi skólans.
Sjá auglýsingu á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2026.

Langar þig til að vinna í rólegu umhverfi í nýjum skóla? Þá gæti Krummakot verið góður kostur
Lausar eru stöður deildarstjóra og leikskólakennara. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Sjá auglýsingu á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Frekari upplýsingar veita Erna Káradóttir eða Sigþóra Baldursdóttir í síma 464-8120, netföng; erna@krummi.is – sigtora@krummi.is.

Bókasafnið er komið í páskafrí
Opnum aftur eftir páska miðvikudaginn 8. apríl.
Gleðilega páska.
Bókavörður.
Helgihald í kirkjum Eyjafjarðarsveitar í dymbilviku og á páskadag

Skírdagur 2. apríl
Fermingarmessa í Hólakirkju kl. 14:00. Fermdir verða Einar Hjalti Steingrímsson og Hafþór Bjarki Óttarsson.
Kirkjukór Grundarsóknar syngur undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Prestur Hildur Eir Bolladóttir og meðhjálpari Sveinn Rúnar Sigmundsson.

Föstudagurinn langi 3. apríl
Helgiganga á vegum hjálparsveitarinnar Dalbjargar. Lagt verður af stað gangandi frá Dalborg í Hrafnagilshverfi kl. 10:00 og gengið á bökkunum inn að Munkaþverárkirkju. Einnig er í boði að þiggja far frá Dalborg kl. 11:00 að kirkjunni og ganga til baka. Þegar göngufólk kemur til kirkju verður þar stutt helgistund. Prestur Aðalsteinn Þorvaldsson og organisti Þorvaldur Örn Davíðsson. Kirkjukór Grundarsóknar syngur. Er stundinni lýkur er gengið til baka í Dalborg þar sem boðið verður upp á vöfflukaffi og kassaklifur kl. 13:00-14:00. Frjáls framlög í styrktarsjóð Dalbjargar.
Páskadagur 5. apríl

Hátíðarmessa í Grundarkirkju kl. 11:00.
Kirkjukór Grundarsóknar syngur. Organisti er Þorvaldur Örn Davíðsson. Prestur Aðalsteinn Þorvaldsson og meðhjálpari Hjörtur Haraldsson.

Hátíðarmessa í Kaupangskirkju kl. 13:30.
Söngfélagar við Kaupangskirkju syngja. Organisti Petra Björk Pálsdóttir. Prestur Aðalsteinn Þorvaldsson og meðhjálpari Hansína María Haraldsdóttir.

Bókaklúbburinn hittist á bókasafninu 5. mars og ræddi bækur febrúarmánaðar eftir Claire Keegan sem komið hafa út á íslensku;
Seint og um síðir, Smámunir sem þessir og Fóstur. Bækurnar fengu þá umsögn að vera vel skrifaðar. Þær lýsa lífi fólks á Írlandi á síðustu öld, þar sem kaþólska kirkjan hefur ægivald, vakir yfir og stýrir lífi fólks í fátæku samfélagi. Klúbbmeðlimum þótti Smámunir sem þessir einstaklega áhrifarík þar sem í bakgrunni er saga ógiftra stúlkna og kvenna sem verða óléttar og eru vistaðar hjá nunnum þar til þær hafa eignast börnin sem eru svo tekin frá þeim og gefin til ættleiðingar.
Bók mars mánaðar er Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafsdóttur.
Síðasti fundur vetrarins er ráðgerður 9. apríl.