Auglýsingablað 1332. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 14. apríl 2026.

Sveitarstjórnarfundur
675. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtud. 16. apríl og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

Aðalfundur sóknarnefndar Kaupangskirkju verður haldin í Kaupangskirkju fimmtudaginn 16 apríl kl 16:30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Allir velkomnir.
Sóknarnefnd.

Tímabundin staða kennara við Hrafnagilsskóla
Leitað er eftir kennara í 40% starf. Kennarar eru faglegir leiðtogar og sjálfstæðir í vinnubrögðum en þurfa jafnframt að vinna í teymi og í nánu samstarfi við aðra kennara og stoðteymi skólans. Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2026.
Sjá nánar á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.

Kvenfélagið Iðunn býður á Iðunnarkvöld þriðjudaginn 21. apríl kl. 20:00
Við hittumst í fundarherbergi Iðunnar á efri hæðinni í Laugarborg. Boðið verður upp á stutt stólajóga, hressingu og samtal um gagnsemi gervigreindar í leik og starfi.
Nýjar konur eru alltaf velkomnar.

Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2026 verður haldinn fimmtudagskvöldið 23. apríl, kl. 20:00 á Ytra-Gili. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Athugið að framboðsfrestur til stjórnar rennur út viku fyrir aðalfund.
Veitingar verða í boði og vonumst við til að sjá sem flesta. Nýjir félagar eru boðnir velkomnir.
Bestu kveðjur,
Stjórn Hjálparsveitarinnar Dalbjargar.