Auglýsingablað 1334. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 28. apríl 2026.
[Engar auglýsingar bárust fyrir þriðjudaginn 5. maí og því verður ekkert blað þá]

Sveitarstjórnarfundur
676. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtud. 30. apríl og hefst hann kl. 16:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

Laus staða íþróttakennara í Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit
Við óskum eftir að ráða íþróttakennara í 80-100% starf frá og með 1. ágúst 2026. Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár og er íþróttakennsla u.þ.b. 60% af starfinu. Önnur kennsla getur verið eftir áhugasviði og sérmenntun viðkomandi.
Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2026. Nánari upplýsingar á esveit.is.

Nýtt bókunarkerfi á tjaldsvæðinu tekið í notkun
Reisa verður nýr þjónustuaðili bókunarkerfis tjaldsvæðisins í Hrafnagilshverfi frá og með 1. maí. Reisa tekur við af bókunarkerfi Parka sem verið hefur í notkun undanfarin ár. Opnað verður fyrir bókanir þann 1. maí n.k. Tjaldsvæðið opnar formlega 15. maí þar sem opið verður fyrir vatn og salernisaðstöðu á útisvæði, en salerni og sturtuaðstaða innandyra verður opnað um leið og Hrafnagilsskóli lýkur sínu skólaári. Fram að því geta tjaldsvæðisgestir nýtt sér sturtuaðstöðu í íþróttamiðstöðinni á opnunartíma hennar.
Vorferð Félags eldri borgara í Eyjafjarðarsveit 27. - 30. maí
Fyrirhugað er að fara í ferð um Borgarfjarðarhérað og nágrenni þar sem gist verður í Borgarnesi.
Héraðið verður skoðað með staðkunnugum leiðsögumönnum, þeim Gísla Einarssyni og Guðmundi Hallgrímssyni. Á leiðinni suður munum við fá leiðsögn Magnúsar Ólafssonar sem fer með okkur um Vatnsdal og fræðir okkur um sögu Friðriks og Agnesar morðingja Natans Ketilssonar.
Gisting, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður er innifalið í verðinu sem og aðgangur að söfnum.
Áætlað verð ferðarinnar er 130 þúsund krónur á mann miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi.
PS - Hægt er að skrá sig á sýninguna Mister Skallagrímsson í Landnámssetrinu en sú sýning er ekki innifalin. Verð hvers miða er 6900 kr.
Skráning er til 5. maí hjá Sveinbjörgu í síma 8463222, Leifi í síma 8948677 og Páli í síma 6617627.

1. maí hlaup
Verður haldið á Þórsvelli föstudaginn 1. maí.
Frítt fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri.
Leikskólahlaup: 400 m fyrir börn fædd 2020 og síðar
Grunnskólahlaup: Val milli 2 km eða 5 km
Fólk á öllum aldri: 5 km hlaup
Allir fá pizzusneið og hressingu að hlaupi loknu.
Frítt í sund daginn eftir!
Skráningarfrestur er til kl. 20:00 fimmtudaginn 30. apríl Keppnisgögn (númer) og sundmiðar verða afhent í Íþróttahöllinni fimmtudaginn 30. apríl milli kl. 16:00 og 20:00. Athugið ekki verður hægt að sækja númer á hlaupdegi.
Skráning og nánari upplýsingar um hlaupið á www.ufa.is

Kvenfélagið Iðunn – Vorfundur í Laugarborg
Vorfundurinn okkar verður haldinn laugardaginn 9. maí kl. 10:30 í Laugarborg. Bröns, kaffi og kruðerý á boðstólum.
Fundarboð ásamt dagskrá hefur verið send félagskonum í tölvupósti og er á leiðinni í sniglapósti. Skráning óskast á idunn@kvenfelag.is í síðasta lagi 2. maí.
Nýjar konur velkomnar – muna að skrá sig :-)
Vorkveðjur, stjórnin.

Útgáfuónleikar Ágústar, þann 5. maí kl. 20 í Laugarborg
Í boði Skógarbaðanna og Eyjafjarðarsveitar ætla ég, þann 5. maí næstkomandi, að flytja fyrir ykkur mína fyrstu plötu, Hjartað á milljón, ásamt nokkrum vel völdum lögum.
Tónleikarnir verða í Laugarborg kl. 20:00 og verður frítt inn í boði Skógarbaðanna og Eyjafjarðarsveitar. Hlakka mikið til að spila fyrir fyrir ykkur öll.
Sjáumst!