Auglýsingablaðið

1335. TBL 12. maí 2026

Auglýsingablað 1335. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 12. maí 2026.

 


Sveitarstjórnarfundur
677. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, miðvikudaginn 13. maí og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026

Kjörfundur
Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Félagsborg (Skólatröð 9) gengið er inn um inngang að skrifstofum Eyjafjarðarsveitar.

Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja með mynd eða á annan fullnægjandi hátt. Hægt er að sýna stafræn ökuskírteini sem eru aðgengileg Ísland.is appinu, https://island.is/okuskirteini

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra fer fram sem hér segir:

Strandgata 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorg)

  • Virka daga og á uppstigningardag: kl. 10-18
  • Um helgar: kl. 11-15
  • Á kjördag: kl. 10-17

Talning atkvæða
Talning atkvæða fer fram á kjördag kl 22:00 Í fundarherbergi 2 á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar.

Kjörskrá
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026 liggur almenningi til sýnis á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar en opið er á skrifstofunum virka daga frá kl. 10:00 til 14:00. Á kjörskrá skal taka þá sem uppfylla skilyrði 4. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og skráðir eru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár miðað við 8. apríl 2026.

Framboðslistar
Tveir framboðslistar skiluðu gögnum og voru báðir listar samþykktir af kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar.
Listarnir í framboði eru:

F-listinn og K-listinn
https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/frettir/tilkynning-fra-kjorstjorn-eyjafjardarsveitar-tveir-listar-samthykktir

Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar
Einar Jóhannsson, Sigríður Hrefna Pálsdóttir og Þór Hauksson Reykdal.

 


Kæru félagar FEBE

Nú þegar félagsstarfinu líkur,þá taka við göngutúrarnir. Og ætlum við að hittast á þriðjudögum kl. 14.00. Þá er lagt af stað.

2. júní Austurbakki Eyjaf.ár, í suður.(Kaffi í Botnsreit)

9.-- Leifstaðabrúnir

16.-- Kristnesskógur

23.--Krossanesborgir.

30.-- Gömlu brýrnar.

  1. júlí Göngustígur frá Jólagarði

14.--Hitaveituvegur frá Dælustöð

21-- Listigarður.

28.--Aldísarlundur

  1. ágúst Göngustígur frá Teigi

11.--Kjarnnaskógur.

18.-- Hringur í Hrafnagilshverfi

25.--Skógarböð(göngustígur)

Þetta er birt með fyrirvara um breytingar, og mun ég setja jafnóðum inn á síðuna okkar hvar mæting er í hvert sinn. Og endilega þeir sem treysta sér ekki til að mæta í göngu, koma bara og spjalla, og kannski verður alltaf eitthvað á könnunni. 😊

Upplýsingar veita, Sveinbjörg s. 846-3222, Bergljót s. 864-8414, Edda s. 894-1303 og Hulda s. 864-6191.

Getum við bætt efni síðunnar?