Auglýsingablaðið

1336. TBL 19. maí 2026

Auglýsingablað 1336. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 19. maí 2026.

 

Fermingar í Eyjafjarðarsveit vorið 2026
Átján fermingarbörn eru fermd þetta vorið í fjórum athöfnum hér í sveit.
Allir sveitungar eru velkomnir í stóru athöfnina næstkomandi sunnudag, hvítasunnudag, í Grundarkirkju kl. 11:00.
Þar syngur kirkjukór Grundarsóknar undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Meðhjálpari er Hjörtur Haraldsson og prestur Jóhanna Gísladóttir.


Fimmtudaginn 2. apríl sl. voru fermdir í Hólakirkju:
Einar Hjalti Steingrímsson, Torfufelli
Hafþór Bjarki Óttarsson, Lækjarbrekku


Laugardaginn 11. apríl sl. var fermd í Kaupangskirkju:
Halldóra Brá Hákonardóttir, Svertingsstöðum 2


Á hvítasunnudag 24. maí verða fermd í Grundarkirkju kl. 11:
Aldís Hekla Jóhannesdóttir, Finnastöðum 1
Anna María Jónbjörnsdóttir, Brekkutröð 5
Anný Henríetta Knútsdóttir, Dvergsstöðum
Breki Týr Brynjarsson, Vallartröð 2
Fannar Nói Fannarsson, Laugartröð 5
Hafrún Lea Jónsdóttir, Laugartröð 3
Ísak Fannar Heimisson, Bakkatröð 17
Klara Lind Jónsdóttir, Krónustöðum
Kolgrímur Maríus Páll Kristinn Sigurðarsson, Vallartröð 1
Lilja Sól Favour Kristbjörnsdóttir, Sigtúnum
Stefán Geir Aronsson, Bakkatröð 34
Viktor Örn Brynjarsson, Bakkatröð 28a
Þórunn Sif Andradóttir, Kroppi


Á hvítasunnudag 24. maí verða fermdar í Grundarkirkju kl. 13:
Birgit Elva Henriksdóttir, Rútsstöðum
Bríet Lúðvíksdóttir, Sunnutröð 10

 

Kynningarfundur á fermingarfræðslu næsta vetrar í Eyjafjarðarsveit
Stuttur kynningarfundur á fræðslu næsta vetrar '26 - '27 fer fram í Munkaþverárkirkju fimmtudagskvöldið næstkomandi 21. maí kl. 20:00.
Öll ungmenni fædd árið 2013, foreldrar þeirra og forráðafólk eru hjartanlega velkomin. Farið verður yfir hvernig fræðslunni verður háttað næsta haust og vetur, ferðalag í Vatnaskóg kynnt, fermingardagar ræddir og öllum spurningum svarað.

 


Síðasta sveitaballið
Greifarnir ætla að halda sveitaball í Freyvangi 5. júní og er það partur af landstúr þeirra sem ber yfirskriftina “síðasta sveitaballið”.
Þetta verður fyrsta ball sumarsins og vildu þeir stíla á að vera í þeim félagsheimilum landsins þar sem þeir hefðu spilað á árum áður.
Ballið er frá kl. 22-01 og er miðasala hafin á tix.is.

 

Kæru félagar FEBE
Nú þegar félagsstarfinu lýkur, þá taka við göngutúrarnir og ætlum við að hittast á þriðjudögum kl. 14.00. Þá er lagt af stað.

2. júní Austurbakki Eyjaf.ár, í suður (Kaffi í Botnsreit)
9.-- Leifsstaðabrúnir
16.-- Kristnesskógur
23.-- Krossanesborgir
30.-- Gömlu brýrnar

7. júlí Göngustígur frá Jólagarði
14.-- Hitaveituvegur frá Dælustöð
21-- Lystigarður
28.-- Aldísarlundur

4. ágúst Göngustígur frá Teigi
11.-- Kjarnaskógur
18.-- Hringur í Hrafnagilshverfi
25.-- Skógarböð (göngustígur)

Þetta er birt með fyrirvara um breytingar og mun ég setja jafnóðum inn á síðuna okkar hvar mæting er í hvert sinn. Og endilega þeir sem treysta sér ekki til að mæta í göngu, koma bara og spjalla, og kannski verður alltaf eitthvað á könnunni 😊
Upplýsingar veita, Sveinbjörg s. 846-3222, Bergljót s. 864-8414, Edda s. 894-1303 og Hulda s. 864-6191.

 

Getum við bætt efni síðunnar?