Auglýsingablaðið

1337. TBL 26. maí 2026

Auglýsingablað 1337. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 26. maí 2026.


Laugartröð lokuð norðanmegin
Vegna framkvæmda verður tímabundin lokun á Laugartröð að norðanverðu, frá og með morgundeginum 27. maí, en opið verður á suðurendanum!


Sækja um leikskólapláss
Leikskólinn Krummakot hvetur alla foreldra sem ætla að fá leikskólapláss fyrir börn sín næsta vetur til að sækja um sem fyrst. Svo umsóknin gildi, þarf lögheimili barnsins að vera í sveitarfélaginu þegar leikskólagangan hefst.

 


Kaffihlaðborð
Kvenfélagið Hjálpin heldur sitt margrómaða kaffihlaðborð sunnudaginn 31. maí í Funaborg Melgerðismelum kl. 13.30.
Verð fyrir fullorðna 3.500 kr. og 1.500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri.
Hlökkum til að sjá ykkur.

 


Sumarlokun bókasafnsins
Nú fer að líða að sumarlokun á bókasafninu. Síðasti opnunardagurinn á þessum vetri er föstudaginn 29. maí, þá er opið milli kl. 14:00 og 16:00.
Gott væri að minna skólabörnin á að skila þeim bókum sem þau eru með í láni.
Við viljum þakka öllum þeim sem nýttu sér bókasafnið í vetur.
Bókasafnið opnar aftur í byrjun september.
Með sumarkveðju,
Bókaverðir

 


Síðasta sveitaballið
Greifarnir ætla að halda sveitaball í Freyvangi 5. júní og er það partur af landstúr þeirra sem ber yfirskriftina “síðasta sveitaballið”.
Þetta verður fyrsta ball sumarsins og vildu þeir stíla á að vera í þeim félagsheimilum landsins þar sem þeir hefðu spilað á árum áður.
Ballið er frá kl. 22-01 og er miðasala hafin á tix.is.

 


Kæru félagar FEBE
Nú þegar félagsstarfinu lýkur, þá taka við göngutúrarnir og ætlum við að hittast á þriðjudögum kl. 14.00. Þá er lagt af stað.

2. júní Austurbakki Eyjaf.ár, í suður (Kaffi í Botnsreit)
9.-- Leifsstaðabrúnir
16.-- Kristnesskógur
23.-- Krossanesborgir
30.-- Gömlu brýrnar

7. júlí Göngustígur frá Jólagarði
14.-- Hitaveituvegur frá Dælustöð
21-- Lystigarður
28.-- Aldísarlundur

4. ágúst Göngustígur frá Teigi
11.-- Kjarnaskógur
18.-- Hringur í Hrafnagilshverfi
25.-- Skógarböð (göngustígur)

Þetta er birt með fyrirvara um breytingar og mun ég setja jafnóðum inn á síðuna okkar hvar mæting er í hvert sinn. Og endilega þeir sem treysta sér ekki til að mæta í göngu, koma bara og spjalla, og kannski verður alltaf eitthvað á könnunni 😊
Upplýsingar veita, Sveinbjörg s. 846-3222, Bergljót s. 864-8414, Edda s. 894-1303 og Hulda s. 864-6191.

Getum við bætt efni síðunnar?