Auglýsingablað 1338. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 2. júní 2026.

Sveitarstjórnarfundur
678. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, miðvikudaginn 4. júní og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

Sækja um leikskólapláss
Leikskólinn Krummakot hvetur alla foreldra sem ætla að fá leikskólapláss fyrir börn sín næsta vetur til að sækja um sem fyrst. Svo umsóknin gildi, þarf lögheimili barnsins að vera í sveitarfélaginu þegar leikskólagangan hefst.

Lokadagur og skólaslit
Lokadagur nemenda þetta skólaárið er fimmtudagurinn 4. júní og þann dag keyra skólabílar heim kl. 13:00. Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir og er það síðasti opnunardagur þessa skólaárs.
Skólaslitin fara fram í íþróttahúsinu föstudaginn 5. júní kl. 18:00.
Fólk er beðið að huga að því hvort skólabækur eða bókasafnsbækur hafi gleymst heima og koma þeim til skila. Einnig er hægt að skila inn Unicef áheitum.
Óskilamunir verða til sýnis og eru allir hvattir til að kíkja á þá.
Að sumarleyfi loknu verður Hrafnagilsskóli settur mánudaginn 24. ágúst kl. 13:00 og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.
Skólastjórnendur

Síðasta sveitaballið
Greifarnir ætla að halda sveitaball í Freyvangi 5. júní og er það partur af landstúr þeirra sem ber yfirskriftina “síðasta sveitaballið”.
Þetta verður fyrsta ball sumarsins og vildu þeir stíla á að vera í þeim félagsheimilum landsins þar sem þeir hefðu spilað á árum áður.
Ballið er frá kl. 22-01 og er miðasala hafin á tix.is.
Kæru félagar FEBE
Nú þegar félagsstarfinu lýkur, þá taka við göngutúrarnir og ætlum við að hittast á þriðjudögum kl. 14.00. Þá er lagt af stað.
2. júní Austurbakki Eyjaf.ár, í suður (Kaffi í Botnsreit)
9.-- Leifsstaðabrúnir
16.-- Kristnesskógur
23.-- Krossanesborgir
30.-- Gömlu brýrnar
7. júlí Göngustígur frá Jólagarði
14.-- Hitaveituvegur frá Dælustöð
21-- Lystigarður
28.-- Aldísarlundur
4. ágúst Göngustígur frá Teigi
11.-- Kjarnaskógur
18.-- Hringur í Hrafnagilshverfi
25.-- Skógarböð (göngustígur)
Þetta er birt með fyrirvara um breytingar og mun ég setja jafnóðum inn á síðuna okkar hvar mæting er í hvert sinn. Og endilega þeir sem treysta sér ekki til að mæta í göngu, koma bara og spjalla, og kannski verður alltaf eitthvað á könnunni 😊
Upplýsingar veita, Sveinbjörg s. 846-3222, Bergljót s. 864-8414, Edda s. 894-1303 og Hulda s. 864-6191.