Auglýsingablaðið

1340. TBL 16. júní 2026

Auglýsingablað 1340. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 16. júní 2026.


Sveitarstjórnarfundur
679. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 18. júní og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Mikið líf í Hrafnagilshverfi - Hvetjum íbúa til að fegra nærumhverfið og taka vel á móti gestum.
Dagana 26.–28. júní verður líf og fjör í Eyjafjarðarsveit þegar Landsmót UMFÍ 50+ fer fram. Fjölmargir gestir munu sækja sveitarfélagið heim og sunnudaginn 28. júní mun Ungmennafélagið Samherjar fagna 30 ára afmæli sínu með viðburðum sem verða hluti af hátíðarhelginni. Verður það auglýst nánar síðar.

Það er því óhætt að segja að sveitarfélagið sé að búa sig undir annasama og skemmtilega helgi. En nú standa yfir umfangsmiklar framkvæmdir í Hrafnagilshverfi. Unnið er að malbikun gatna og gangstétta, framkvæmdir standa yfir á lóð leikskólans og áfram er unnið af krafti við viðbyggingu Hrafnagilsskóla. Þá eru verktakar og húsbyggjendur á fullu að vinna að framkvæmdum við ný hús í nýjustu götum hverfisins.

Starfsmenn Norðurorku vinna jafnframt þessa dagana að lagningu veitukerfa meðfram Hrafnatröð. Verkið hefur tafist af ýmsum ástæðum og biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar valda. Viljum við þakka íbúum fyrir sýnda þolinmæði og ekki síst íbúum í Bakkatröð þar sem umferð hefur verið beint í gegnum götuna meðan á framkvæmdunum stendur.

Þrátt fyrir miklar framkvæmdir er markmiðið skýrt; að taka vel á móti gestum og sýna sveitarfélagið frá sinni bestu hlið. Sveitarfélagið leggur sitt af mörkum til verkefnisins. Vinnuskólinn er kominn á fullt skrið við að fegra umhverfið, nýjustu „starfsmenn“ sveitarfélagsins, slátturóbótarnir, vinna ötullega á grænum svæðum og starfsfólk og verktakar kappkosta að ganga frá framkvæmdasvæðum eins vel og kostur er.

Nú leitum við einnig til ykkar og hvetjum íbúa Hrafnagilshverfis og sveitarfélagsins alls til að líta yfir garða sína, lóðir og nærumhverfi næstu daga. Með sameiginlegu átaki getum við gert hverfið enn snyrtilegra og tekið á móti gestum Landsmóts 50+ og afmælishátíðar Samherja með þeim hlýhug og metnaði sem einkennir Eyjafjarðarsveit.

Ef íbúar verða varir við eitthvað á vegum sveitarfélagsins sem betur mætti fara hvað varðar snyrtimennsku eða umhirðu er þeim velkomið að senda ábendingar á netfangið esveit@esveit.is.

Við hlökkum til að taka á móti gestum, fagna með Umf. Samherjum þessum merka áfanga og njóta saman viðburðaríkrar helgar í Eyjafjarðarsveit.

 


Sækja um leikskólapláss
Leikskólinn Krummakot hvetur alla foreldra sem ætla að fá leikskólapláss fyrir börn sín næsta vetur til að sækja um sem fyrst. Svo umsóknin gildi, þarf lögheimili barnsins að vera í sveitarfélaginu þegar leikskólagangan hefst.

 


Hinsegin hátíð í Eyjafjarðarsveit 18. júní
Á bókasafninu kl. 14:00–16:00 – Fjölskylduföndur, allir velkomnir.
Lifandi bókakaffi verður þar á sama tíma þar sem hinsegin einstaklingar deila persónulegri reynslu sinni og bjóða ykkur í opið spjall.
Regnbogasund og frítt í sund fyrir alla kl. 16:00-17:00 – lífleg tónlist og sundlaugin skreytt.
Kl. 20:30 mun hljómsveitin Tár spila fyrir gesti Skógarbaðanna.
Allir velkomnir.

 


Óskastund Kristínar Sigfúsdóttur skálds í Sigurhæðum
Fimmtudaginn 18. júní kl. 17-18 er boðið til 150 ára fæðingarafmælis Kristínar Sigfúsdóttur skálds frá Helgastöðum í Eyjafirði. Viðburðurinn fer fram í dagstofum Sigurhæða á Akureyri.

Leikararnir Hjalti Jónsson, Jón Benónýsson, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Sunna Borg og Þuríður Jóna Schiöth leiklesa brot úr leikritinu Tengdamömmu sem Kristín skrifaði árið 1920 og var leikið víða um land við miklar vinsældir.

Sigrún Jóhannesdóttir barnabarn Kristínar segir einnig stutt frá eftirminnilegri ömmu sinni.

Umsjón með dagskránni hafa María Pálsdóttir leikari og Kristín Þóra staðarhaldari í Sigurhæðum og er unnið í samstarfi við Menningarsjóð Eyjafjarðarsveitar, Akureyrarbæ, Uppbyggingarsjóð Norðurlands Eystra sem og Ráðuneyti menningar, háskóla og nýsköpunar.

Óskastund Kristínar er öllum opin og enginn aðgangseyrir.

 


Kæru Funafélagar og velunnarar
21. júní verður haldin Bæjakeppni á Melgerðismelum.
Hefst með skráningu kl. 13 og keppnin hefst kl. 14.
Skráning á staðnum, keppt verður í polla-, barna-, unglinga-, ungmenna-, kvenna- og karla flokki
Verðlauna afhending í Funaborg eftir keppni og sjoppusala.
Hlökkum til að sjá sem flesta.

 


Skemmtinefnd Funa
-stendur fyrir messureið í Möðruvallakirkju í Eyjafjarðarsveit þann 21. júní.
Prestur er Jóhanna Gísladóttir og Jódísir syngja nokkur lög.
Lagt verður af stað frá réttinni á Melgerðismelum klukkan 20.
Á Möðruvöllum verður búið að koma upp hólfi fyrir hrossin.
Kaffi og kleinur á boðstólnum eftir messuna.
Vonumst til að sjá sem flesta.

Getum við bætt efni síðunnar?