Auglýsingablaðið

1342. TBL 30. júní 2026

Auglýsingablað 1342. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 30. júní 2026.

 


Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið
sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.

5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Ernir Daði Arnbergz. Athugið að hægt er að nýta frístundastyrkinn við skráningu.

Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com

Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!

 


Íþróttavika Evrópu haldin í haust
Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. – 30. september eins og undanfarin ár. Líkt og áður mun sveitarfélagið halda utan um dagskrá og kynningarmál en áfram verður leitað til þeirra sem halda úti hreyfi- og/eða vellíðunarúrræðum hér í sveit varðandi framkvæmd einstakra viðburða. Íþróttavikan er haldin út um alla Evrópu og er styrkt af Evrópusambandinu í gegn um ÍSÍ og mun Eyjafjarðarsveit sækja um styrk til verkefnisins eins og undanfarin ár.

Í fyrra var haldið svokallað „virkniþing“ í fyrsta skiptið og í ár verður haldið áfram að þróa þann viðburð. Þar var einstaklingum og félagasamtökum sem bjóða upp á hreyfi- og vellíðunarúrræði í Eyjafjarðarsveit boðið að kynna sína starfsemi auk þess sem viðburðurinn var útvíkkaður til annarra frjálsra félagasamtaka líka.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í íþróttavikunni er bent á að senda tölvupóst á Karl Jónsson Íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfanginu karlj@esveit.is. Einnig má koma hugmyndum að viðfangsefnum íþróttavikunnar þangað líka og sérstaklega varðandi dagskrá virkniþingsins þar sem allar hugmyndir eru vel þegnar.

Getum við bætt efni síðunnar?