Auglýsingablaðið

1344. TBL 14. júlí 2026

Auglýsingablað 1344. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 14. júlí 2026.


Sumarlokun hjá Eyjafjarðarsveit og Skipulags- og byggingarfulltrúa
Skrifstofur Eyjafjarðarsveitar og Skipulags- og byggingarfulltrúa verða
lokaðar frá 20. júlí til og með 3. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Opnað verður aftur þriðjudaginn 4. ágúst, eftir verslunarmannahelgi.
Njótið sumarsins!

 


Auglýsingablað – þriðjudaginn 4. ágúst
Næsta auglýsingablað, eftir sumarlokun, verður þriðjudaginn 4. ágúst.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 10:00 þann dag á esveit@esveit.is 
Nánari upplýsingar um auglýsingar og viðburðadagatal er að finna á heimasíðunni esveit.is > Auglýsingablað.

 


Auglýst eftir metnaðarfullum frístundaleiðbeinanda

Laus er staða frístundaleiðbeinanda við Félagsmiðstöðina Hyldýpi í Eyjafjarðarsveit. Hyldýpi heldur úti frístundastarfi fyrir börn og unglinga á mið- og unglingastigi Hrafnagilsskóla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september 2026.

Opið er þrisvar sinnum í viku fyrir nemendur miðstigs, milli kl. 14 og 16 og 1-2 kvöld í viku fyrir nemendur unglingastigs. Tímafjöldi í eðlilegum mánuði er um 34-36 tímar. Auk viðveru á viðburðum tekur frístundaleiðbeinandi þátt í ferðum félagsmiðstöðvarinnar utan svæðis.

Starfið hefur verið í mikilli þróun og mörg spennandi verkefni framundan. Hyldýpi tekur þátt í samstarfi lítilla félagsmiðstöðva í Eyjafirði og Þingeyjarsveit og er með þeim þátttakandi í alþjóðlegu starfi með samstarfsaðilum frá Danmörku, Þýskalandi og Litháen. Á næstu misserum mun Hyldýpi flytja í nýtt og rúmbetra húsnæði sem mun bjóð upp á skemmtilega þróun starfsins. Hyldýpi starfar í takti við nýsköpunarstefnu Eyjafjarðarsveitar þar sem áherslan mun verða lögð á að aðlaga starfið að áhugasviði þátttakenda og fara nýjar leiðir í þeirri nálgun m.a. í klúbbastarfi.

Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á starfi með börnum og unglingum, býr yfir færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni, hugmyndaauðgi og getur sýnt frumkvæði í störfum. Gerð er krafa um heiðarleika og stundvísi og að viðkomandi sé jákvæð fyrirmynd fyrir börn og unglinga. Hreint sakavottorð er skilyrði sem og íslenskukunnátta.

Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Umsókn, ásamt kynningarbréfi og ferilsskrá, skal senda á umsjónarmann Hyldýpis, Sunnu Björgu Valsdóttur, sem gefur allar nánari upplýsingar, á netfanginu hyldypi@esveit.is. Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2026.

 


Tónar HÆLISINS: Birna Eyfjörð Þorsteinsdóttir
18. júlí kl. 15:00. Hælið setur um sögu berklanna.
Birna Eyfjörð Þorsteinsdóttir frá Grenivík hefur mikið fengist við kvikmyndatónlist en hefur að undanförnu sinnt eigin tónlistarsköpun og gaf út á dögunum lagið Leiddu mig og stefnir á útgáfu á sinni fyrstu smáskífu á næstunni.
Tónleikarnir eru í boði Hollvina Hælisins.

 


Tónar HÆLISINS: Svavar Knútur
8. ágúst kl. 16:00. Hælið setur um sögu berklanna.
Svavar Knút þarf vart að kynna. Hann kom til okkar í fyrra og sló í gegn hjá Hælisgestum svo það er gaman að fá hann aftur til okkar!
Tónleikarnir eru í boði Hollvina Hælisins.

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?