Auglýsingablað 1345. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 4. ágúst 2026.

Álagning fjallskila 2026
Þeir sem halda allt sauðfé og öll hross heima eru beðnir að tilkynna það til skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í seinasta lagi fimmtudaginn 6. ágúst með tölvupósti á póstfangið esveit@esveit.is eða í síma 463-0600. Berist ekki tilkynning er gert ráð fyrir að sauðfé/hrossum hafi verið sleppt á afrétt. Lagt verður á eftir forðagæsluskýrslum þeirra sem sleppa á afrétt.
Eyjafjarðará, mynd af síðunni eyjafjardara.is
Kæru bændur og landeigendur
Bændadagar í Eyjafjarðará sumarið 2026 eru sem hér segir: 4. ágúst og 1. september nk. Bændum er þá heimilt að veiða fyrir sínu landi enda sé þá öllum veiðireglum árinnar fylgt.
Með veiðikveðju, stjórnin.

Íþróttavika Evrópu haldin í haust
Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. – 30. september eins og undanfarin ár. Líkt og áður mun sveitarfélagið halda utan um dagskrá og kynningarmál en áfram verður leitað til þeirra sem halda úti hreyfi- og/eða vellíðunarúrræðum hér í sveit varðandi framkvæmd einstakra viðburða. Íþróttavikan er haldin út um alla Evrópu og er styrkt af Evrópusambandinu í gegn um ÍSÍ og mun Eyjafjarðarsveit sækja um styrk til verkefnisins eins og undanfarin ár.
Í fyrra var haldið svokallað „virkniþing“ í fyrsta skiptið og í ár verður haldið áfram að þróa þann viðburð. Þar var einstaklingum og félagasamtökum sem bjóða upp á hreyfi- og vellíðunarúrræði í Eyjafjarðarsveit boðið að kynna sína starfsemi auk þess sem viðburðurinn var útvíkkaður til annarra frjálsra félagasamtaka líka.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í íþróttavikunni er bent á að senda tölvupóst á Karl Jónsson Íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfanginu karlj@esveit.is Einnig má koma hugmyndum að viðfangsefnum íþróttavikunnar þangað líka og sérstaklega varðandi dagskrá virkniþingsins þar sem allar hugmyndir eru vel þegnar.

Tónar HÆLISINS: Svavar Knútur
8. ágúst kl. 16:00. Hælið setur um sögu berklanna.
Svavar Knút þarf vart að kynna. Hann kom til okkar í fyrra og sló í gegn hjá Hælisgestum svo það er gaman að fá hann aftur til okkar!
Tónleikarnir eru í boði Hollvina Hælisins.