Auglýsingablað 1346. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 11. ágúst 2026.

Sundlögin okkar
Karlakór Eyjafjarðar heldur tónleika í sundlauginni í Hrafnagilshverfi fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20.00.
Tónleikarnir eru styrktir af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Þeir eru hluti af dagskrá "Sundlaugasumars 2026" en verkefnið var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugarmenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.
Aðgangur er ókeypis og geta gestir annað hvort verið í sundlaug eða pottum - á meðan "húsrúm leyfir," eða staðið á sundlaugarbakkanum.

Haustferð FEBE 31. ágúst 2026
Farið verður i dagsferð um Eyjafjarðarsveit og fallega sveitin okkar skoðuð frá ýmsum sjónarhornum og komið víða við. Lagt verður af stað að morgni og ferðinni lýkur að loknum kvöldverði.
Upplýsingar um verð og dagskrá verður auglýst í næstu viku. Hægt er að skrá sig hjá ferðanefndarfólki.
Anna Reykhúsum, sími 848-1888
Benjamín Ytri-Tjörnum, sími 899-3585
Jóhannes Geir Öngulsstöðum, 892-8827

Íþróttavika Evrópu haldin í haust
Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. – 30. september eins og undanfarin ár. Líkt og áður mun sveitarfélagið halda utan um dagskrá og kynningarmál en áfram verður leitað til þeirra sem halda úti hreyfi- og/eða vellíðunarúrræðum hér í sveit varðandi framkvæmd einstakra viðburða. Íþróttavikan er haldin út um alla Evrópu og er styrkt af Evrópusambandinu í gegn um ÍSÍ og mun Eyjafjarðarsveit sækja um styrk til verkefnisins eins og undanfarin ár.
Í fyrra var haldið svokallað „virkniþing“ í fyrsta skiptið og í ár verður haldið áfram að þróa þann viðburð. Þar var einstaklingum og félagasamtökum sem bjóða upp á hreyfi- og vellíðunarúrræði í Eyjafjarðarsveit boðið að kynna sína starfsemi auk þess sem viðburðurinn var útvíkkaður til annarra frjálsra félagasamtaka líka.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í íþróttavikunni er bent á að senda tölvupóst á Karl Jónsson Íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfanginu karlj@esveit.is Einnig má koma hugmyndum að viðfangsefnum íþróttavikunnar þangað líka og sérstaklega varðandi dagskrá virkniþingsins þar sem allar hugmyndir eru vel þegnar.