Auglýsingablaðið

1347. TBL 18. ágúst 2026

Auglýsingablað 1347. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 18. ágúst 2026.


Sveitarstjórnarfundur
680. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 20. ágúst og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst
Kjörfundur
Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Félagsborg (Skólatröð 9) gengið er inn um inngang að skrifstofum Eyjafjarðarsveitar.
Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja með mynd eða á annan fullnægjandi hátt. Hægt er að sýna stafræn ökuskírteini sem eru aðgengileg Ísland.is appinu https://island.is/okuskirteini

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra fer fram sem hér segir:
Strandgata 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorgið á Akureyri)
Virka daga: kl. 10-15

Kjörskrá
Kjörskrá liggur almenningi til sýnis á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar en opið er á skrifstofunum virka daga frá kl. 10:00 til 14:00. Á kjörskrá skal taka þá sem uppfylla skilyrði 4. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og skráðir eru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár miðað við 22. júlí 2026. Einnig er hægt að fletta sér upp á https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/

Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar
Sigríður Hrefna Pálsdóttir,
Linda Margrét Sigurðardóttir og
Þór Hauksson Reykdal

 


Haustferð FEBE 31. ágúst 2026
Lagt verður af stað frá Skautahöllinni kl. 9 og þar koma Akureyringar í rútuna. Aðrir eiga að mæta á bílastæðið norðan við Kristnesspítala 9:15.
Hér verður nákvæm ferðaáætlun ekki tíunduð en við hefðum þurft að hafa tveggja daga ferð til að komast yfir allt sem vert er að skoða.
Hádegisverður er í Holtseli, kaffi í Hólshúsum og kvöldverður í Ásum. Í Ásum er boðið upp á vatn með matnum en þeir sem vilja drekka eitthvað annað þurfa að hafa það meðferðis.
Leiðsögumaður í ferðinni verður Valdimar Gunnarsson.

Skráningu lýkur 25. ágúst. Ferðin kostar 12.000 kr og er matur innifalinn. Hægt er að greiða ferðina með því að leggja inn á reikning: kennitala 110749-4229, reikningsnúmer 0370 - 26 - 073699 (setja nöfn ykkar í skýringu).

Hægt er að skrá sig hjá eftirtöldum:
Anna Reykhúsum, sími 848-1888
Benjamín Ytri-Tjörnum, sími 899-3585
Jóhannes Geir Öngulsstöðum, 892-8827

 


Göngur 2026
Fyrri göngur
fara fram 3.-5. september.
Seinni göngur fara fram 18.-20. september.
Hrossasmölun verður 2. október og stóðréttir 3. október.
Gangnaseðlar hafa verið birtir á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar
https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/frettir/gangnasedlar-2026
Talstöðvarásir gangnasvæða koma fram á gangnaseðli.

 


Sundlögin okkar
Karlakór Eyjafjarðar heldur tónleika í sundlauginni í Hrafnagilshverfi fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20.00.
Tónleikarnir eru styrktir af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Þeir eru hluti af dagskrá "Sundlaugasumars 2026" en verkefnið var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugarmenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.
Aðgangur er ókeypis og geta gestir annað hvort verið í sundlaug eða pottum - á meðan "húsrúm leyfir," eða staðið á sundlaugarbakkanum.

 

Getum við bætt efni síðunnar?