Auglýsingablaðið

1348. TBL 25. ágúst 2026

Auglýsingablað 1348. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 25. ágúst 2026.


Sundlögin okkar
Karlakór Eyjafjarðar heldur tónleika í sundlauginni í Hrafnagilshverfi fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20.00.
Tónleikarnir eru styrktir af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Þeir eru hluti af dagskrá "Sundlaugasumars 2026" en verkefnið var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugarmenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.
Aðgangur er ókeypis og geta gestir annað hvort verið í sundlaug eða pottum - á meðan "húsrúm leyfir," eða staðið á sundlaugarbakkanum.

 


Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst

Kjörfundur
Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Félagsborg (Skólatröð 9) gengið er inn um inngang að skrifstofum Eyjafjarðarsveitar.

Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja með mynd eða á annan fullnægjandi hátt. Hægt er að sýna stafræn ökuskírteini sem eru aðgengileg Ísland.is appinu https://island.is/okuskirteini

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra fer fram sem hér segir:

Strandgata 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorgið á Akureyri)
Virka daga: kl. 10-15

Kjörskrá
Kjörskrá liggur almenningi til sýnis á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar en opið er á skrifstofunum virka daga frá kl. 10:00 til 14:00. Á kjörskrá skal taka þá sem uppfylla skilyrði 4. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og skráðir eru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár miðað við 22. júlí 2026. Einnig er hægt að fletta sér upp á https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/

Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Félagsborg, Skólatröð 9, sími 894-1372.

Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar
Sigríður Hrefna Pálsdóttir, Linda Margrét Sigurðardóttir og Þór Hauksson Reykdal.

 


Kaffihlaðborð
Kvenfélagið Hjálpin heldur sitt margrómaða kaffihlaðborðí Funaborg á Melgerðismelum sunnudaginn 30. ágúst, þar munu borðin svigna undan kökum og kruðeríi.
Verð 3.500 kr fyrir fullorðna og 1.500 kr fyrir grunnskólabörn.
Hlökkum til að sjá ykkur.

 


Samstöðutónleikar vegna endurhæfingarinnar á Kristnesi
Þetta skal amk ekki gerast þegjandi og hljóðalaust! Hópur sem vill endurhæfinguna áfram á Kristnesi stendur að þessum tónleikum. Í hópnum eru endurhæfingarlæknar, sjúkraþjálfara og annað starfsfólk Kristnesspítala ásamt velunnurum. Exton lánar okkur hljóðkerfi og allir þessi dásamlegu listamenn gefa vinnuna sína!
Öll velkomin - klædd eftir veðri því þetta eru útitónleikar sunnan við aðalbygginguna.
Frjáls framlög vel þegin til að borga hljóðmanni.

 


Kæru bændur og landeigendur
1. september nk. er Bændadagur í Eyjafjarðará. Þá er bændum heimilt að veiða fyrir sínu landi enda sé þá öllum veiðireglum árinnar fylgt.
Með veiðikveðju, stjórnin. Eyjafjarðará, mynd af síðunni eyjafjardara.is

 


Göngur 2026
Fyrri göngur fara fram 3.-5. september.
Seinni göngur fara fram 18.-20. september.
Hrossasmölun verður 2. október og stóðréttir 3. október.
Gangnaseðlar hafa verið birtir á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar
https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/frettir/gangnasedlar-2026
Talstöðvarásir gangnasvæða koma fram á gangnaseðli.

 

Kirkjukór Grundarsóknar auglýsir:
Kóræfingar hefjast í Laugarborg mánudaginn 14. september kl. 20.
Framundan er söngur í messum í sókninni, sameiginlegir tónleikar með Samkór Dalvíkur með tónlist úr smiðju Gunnars Þórðarsonar og aðventukvöldið verður á sínum stað á öðrum í aðventu. Nýtt söngfólk velkomið að mæta á æfingu.
Nánari upplýsingar hjá kórstjóra Þorvaldi thorvaldurorn@akirkja.is/846 9202 , Ármanni formanni armann@svak.is/777 0367 eða Sigríði Hrefnu ritara sigga@hjalmsstadir.com/866 4741.

 


Íþróttavika Evrópu haldin í haust

Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. – 30. september eins og undanfarin ár. Líkt og áður mun sveitarfélagið halda utan um dagskrá og kynningarmál en áfram verður leitað til þeirra sem halda úti hreyfi- og/eða vellíðunarúrræðum hér í sveit varðandi framkvæmd einstakra viðburða. Íþróttavikan er haldin út um alla Evrópu og er styrkt af Evrópusambandinu í gegn um ÍSÍ og mun Eyjafjarðarsveit sækja um styrk til verkefnisins eins og undanfarin ár.

Í fyrra var haldið svokallað „virkniþing“ í fyrsta skiptið og í ár verður haldið áfram að þróa þann viðburð. Þar var einstaklingum og félagasamtökum sem bjóða upp á hreyfi- og vellíðunarúrræði í Eyjafjarðarsveit boðið að kynna sína starfsemi auk þess sem viðburðurinn var útvíkkaður til annarra frjálsra félagasamtaka líka.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í íþróttavikunni er bent á að senda tölvupóst á Karl Jónsson Íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfanginu karlj@esveit.is. Einnig má koma hugmyndum að viðfangsefnum íþróttavikunnar þangað líka og sérstaklega varðandi dagskrá virkniþingsins þar sem allar hugmyndir eru vel þegnar.

Getum við bætt efni síðunnar?