Auglýsingablaðið

1349. TBL 01. september 2026

Auglýsingablað 1349. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 1. september 2026.


Sveitarstjórnarfundur
681. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 3. september og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Göngur 2026
Fyrri göngur
fara fram 3.-5. september.
Seinni göngur fara fram 18.-20. september.
Hrossasmölun verður 2. október og stóðréttir 3. október.
Gangnaseðlar hafa verið birtir á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar
https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/frettir/gangnasedlar-2026
Talstöðvarásir gangnasvæða koma fram á gangnaseðli.

 


Helgihald í kirkjum Eyjafjarðarsveitar á haustdögum og til áramóta
Athygli er vakin á breyttum messutíma í Kaupangskirkju)

27. september - messa í Kaupangskirkju kl. 13:00

4. október - messa í Hólakirkju kl. 13:00
25. október - messa í Munkaþverárkirkju kl. 13:00

8. nóvember - Allra heilagra messa í Möðruvallakirkju kl. 20:00

6. desember - aðventukvöld í Grundarkirkju kl. 20:00
24. desember - aftansöngur í Grundarkirkju kl. 22:00
25. desember - hátíðarmessa í Kaupangskirkju kl. 13:00
26. desember - hátíðarmessa í Munkaþverárkirkju kl. 13:00

 


Kirkjukór Grundarsóknar auglýsir:
Kóræfingar hefjast í Laugarborg mánudaginn 14. september kl. 20.

Framundan er söngur í messum í sókninni, sameiginlegir tónleikar með Samkór Dalvíkur með tónlist úr smiðju Gunnars Þórðarsonar og aðventukvöldið verður á sínum stað á öðrum í aðventu. Nýtt söngfólk velkomið að mæta á æfingu.

Nánari upplýsingar hjá kórstjóra Þorvaldi thorvaldurorn@akirkja.is/846 9202 , Ármanni formanni armann@svak.is/777 0367 eða Sigríði Hrefnu ritara sigga@hjalmsstadir.com/866 4741.

 


Íbúð til leigu í Eyjafjarðarsveit
Þriggja herbergja íbúð til leigu frá mánaðarmótunum sept/okt eða eftir samkomulagi. Leigist með öllum borðbúnaði. Upplýsingar í síma 894-1303.
Edda.

Getum við bætt efni síðunnar?