Auglýsingablaðið

1350. TBL 08. september 2026

Auglýsingablað 1350. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 8. september 2026.



Kynningarfundur um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Hyldýpis
Kynningarfundur um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Hyldýpis næsta starfsár verður haldinn í matsal Hrafnagilsskóla, miðvikudaginn 9. september kl. 19.30. Þar munu umsjónar- og ábyrgðarmenn félagsmiðstöðvarinnar kynna starfið í vetur.

Mikilvægt er að foreldrar mæti á fundinn og sérstaklega foreldrar nýrra þátttakenda í starfinu.

 


Bóksafnið opnar miðvikudaginn 9. september
Opnun Bókasafns Eyjafjarðarsveitar eftir sumarfrí dregst til miðvikudagsins 9. september. Beðist er velvirðingar á töfinni.

Til að byrja með verður bókasafnið opið fyrir almenning þrisvar í viku:

  • Mánudaga kl. 14:00–17:00
  • Miðvikudaga kl. 14:00–17:00
  • Föstudaga kl. 14:00–16:00

Merk tímamót verða við bókasafnið nú í haust þar sem Margrét Baldvina Aradóttir hefur látið af störfum eftir 25 ára starf við safnið. Eyjafjarðarsveit færir Margréti innilegar þakkir fyrir farsælt og ómetanlegt starf í þágu bókasafnsins og samfélagsins í Eyjafjarðarsveit í gegnum árin.

Fram undan eru jafnframt breytingar á húsnæði bókasafnsins. Að öllum líkindum verður þetta síðasta starfsár safnsins í núverandi húsnæði í kjallara íþróttahússins, en stefnt er að því að færa starfsemina í álmu Hrafnagilsskóla við hlið anddyris íþróttahússins næsta haust.

Sunna Björg Valsdóttir tekur nú við umsjón almenningsbókasafnsins en Jóhanna Dögg Stefánsdóttir hefur tekið við umsjón skólabókasafns Hrafnagilsskóla.

Við hlökkum til að taka á móti gestum safnsins að nýju miðvikudaginn 9. sept.
Senda má tölvupóst á netfangið bokasafn@esveit.is



Kirkjukór Grundarsóknar auglýsir:
Kóræfingar hefjast í Laugarborg mánudaginn 14. september kl. 20.

Framundan er söngur í messum í sókninni, sameiginlegir tónleikar með Samkór Dalvíkur með tónlist úr smiðju Gunnars Þórðarsonar og aðventukvöldið verður á sínum stað á öðrum í aðventu. Nýtt söngfólk velkomið að mæta á æfingu.

Nánari upplýsingar hjá kórstjóra Þorvaldi thorvaldurorn@akirkja.is/846 9202 , Ármanni formanni armann@svak.is/777 0367 eða Sigríði Hrefnu ritara sigga@hjalmsstadir.com/866 4741.

 


Bókaklúbbur á Bókasafninu

Bókaklúbbur byrjar aftur miðvikudaginn 16. september kl. 16.30.
Verðum síðan fyrsta miðvikudag í mánuði í vetur.

Bókaklúbburinn er m.a. liður í Viku einmanaleikans https://vikaeinmanaleikans.is/
Þar getur að líta ýmsa aðra viðburði.

Allir velkomnir 😊
Kvenfélagið Iðunn.

 


Helgihald í kirkjum Eyjafjarðarsveitar á haustdögum og til áramóta

(Athygli er vakin á breyttum messutíma í Kaupangskirkju)

27. september - messa í Kaupangskirkju kl. 13:00

4. október - messa í Hólakirkju kl. 13:00
25. október - messa í Munkaþverárkirkju kl. 13:00

8. nóvember - Allra heilagra messa í Möðruvallakirkju kl. 20:00

6. desember - aðventukvöld í Grundarkirkju kl. 20:00
24. desember - aftansöngur í Grundarkirkju kl. 22:00
25. desember - hátíðarmessa í Kaupangskirkju kl. 13:00
26. desember - hátíðarmessa í Munkaþverárkirkju kl. 13:00

 


Birkifræsöfnun í Reykhúsaskógi – Allir velkomnir

Við bjóðum öllum sem vilja til birkifræsöfnunar í Reykhúsaskóg við Kristnesspítala, á Degi íslenskrar náttúru miðvikudaginn 16. september kl. 17:00-19:00. Söfnunarbox verða afhend á planinu við Hælið/Kristnesspítala.

Hægt verður að kaupa hressingu á Hælinu á sama tíma.
Hlökkum til að sjá sem flesta, Lionsklúbburinn Sif.

Getum við bætt efni síðunnar?