Auglýsingablað 1351. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 15. september 2026.

Sveitarstjórnarfundur
682. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 17. september og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.
Helgihald í kirkjum Eyjafjarðarsveitar á haustdögum og til áramóta
(Athygli er vakin á breyttum messutíma í Kaupangskirkju)
27. september - messa í Kaupangskirkju kl. 13:00
4. október - messa í Hólakirkju kl. 13:00
25. október - messa í Munkaþverárkirkju kl. 13:00
8. nóvember - Allra heilagra messa í Möðruvallakirkju kl. 20:00
6. desember - aðventukvöld í Grundarkirkju kl. 20:00
24. desember - aftansöngur í Grundarkirkju kl. 22:00
25. desember - hátíðarmessa í Kaupangskirkju kl. 13:00
26. desember - hátíðarmessa í Munkaþverárkirkju kl. 13:00

Hreyfidagskrá 60+ komin af stað
Búið er að uppfæra dagskrá 60+ aldurshópsins fyrir veturinn. Félag eldri borgara í Eyjafjarðarsveit, Ungmennafélagið Samherjar og Eyjafjarðarsveit sameinast um gerð fjölbreyttrar hreyfidagskrár fyrir aldurshópinn og lítur hún svona út í vetur:
Sundleikfimi
Mánudagar kl. 13.00 - 14.00
Föstudagar kl. 13.00 - 14.00
Þjálfari er Ragnheiður Runólfsdóttir
Styrktartímar
Föstudagar kl. 11.20 - 12.20
Þjálfari er Helga Sigfúsdóttir
Boccia
Miðvikudagar kl. 10.45 - 12.00
Föstudagar kl. 11.20 - 12.20
Ringo
Þriðjudagar kl. 11.25 - 12.30
Nánari upplýsingar á vef sveitarfélagsins á þessari slóð:
https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/thjonusta/malaflokkar/thjonusta-fyrir-eldri-borgara/hreyfing

Birkifræsöfnun í Reykhúsaskógi
FRESTAÐ VEGNA SLÆMRAR VEÐURSPÁR – NÁNAR AUGLÝST SÍÐAR
Lionsklúbburinn Sif.

Iðunnarkvöld, þriðjudaginn 15. september kl. 19:00 í Félagsborg
Við fáum góða gesti á næsta fund okkar en hjónin Inger og Eiríkur frá Syðra-Holti í Svarfaðardal mæta til okkar og segja frá starfi sínu við lífræna ræktun. Á Syðra Holti er rekið fjölskyldurfyrirtæki þar sem ræktun og virðing fyrir náttúrunni fara saman. Þar ræktar fjölskyldan lífrænt vottað íslenskt grænmeti, safnar villtum jurtum og vinnur ýmsar afurðir úr uppskerunni.
Þau koma með sýnishorn af framleiðslu sinni sem verða til sölu að kynningunni lokinni.
Allar konur velkomnar.
Kvenfélagið Iðunn.

Bókaklúbbur á Bókasafninu
Bókaklúbbur byrjar aftur miðvikudaginn 16. september kl. 16.30.
Verðum síðan fyrsta miðvikudag í mánuði í vetur.
Bókaklúbburinn er m.a. liður í Viku einmanaleikans https://vikaeinmanaleikans.is/
Þar getur að líta ýmsa aðra viðburði.
Allir velkomnir 😊
Kvenfélagið Iðunn.
Íbúð til leigu í Eyjafjarðarsveit
Þriggja herbergja íbúð til leigu frá mánaðarmótunum sept/okt eða eftir samkomulagi. Leigist með öllum borðbúnaði. Upplýsingar í síma 894-1303.
Edda.
Til leigu er 30 fm vel búin stúdíóíbúð austan Eyjafjarðarár, 10 km inn af Akureyri. Góð umhirða áskilin og engar reykingar leyfðar innandyra.
Íbúðin getur verið laus á tímabilinu frá 15. október 2026 til 15. júní 2027.
Frekari upplýsingar í síma 861-6632 (Margrét) eða 895-7340 (Helgi).