Auglýsingablað 1352. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 22. september 2026

Messa í Kaupangskirkju sunnudaginn 27. september kl. 13:00
Fyrsta messa haustsins í Eyjafjarðarsveit fer fram nk. sunnudag kl. 13:00.
Við vekjum sérstaklega athygli á breyttum messutíma.
Söngfélagar við Kaupangskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Petra Björk Pálsdóttir. Prestur er Jóhanna Gísladóttir og meðhjálpari Þorbjörg Helga Konráðsdóttir.
Verið öll hjartanlega velkomin!

Birkifræsöfnun í dag þriðjudaginn 22. sept. – Allir velkomnir
Við bjóðum öllum sem vilja til birkifræsöfnunar í Reykhúsaskóg við Kristnesspítala, í dag þriðjudaginn 22. september kl. 17:00-19:00. Söfnunarbox verða afhend á planinu við Hælið/Kristnesspítala.
Hægt verður að kaupa hressingu á Hælinu á sama tíma.
Hlökkum til að sjá sem flesta, Lionsklúbburinn Sif.

Kvenfélagskvöldkaffi - Allar kvenfélagskonur velkomnar og líka þær sem vilja verða kvenfélagskonur
Allar kvenfélagskonur eru hvattar til að skrá sig og taka þátt í Kvenfélagskvöldkaffi KÍ. Ath. það er nauðsynlegt að skrá sig fyrir happdrættið 😉
Það verður opið hús í Félagsborg frá kl. 19:00 miðvikudaginn 30. september og heitt á könnunni. Engin kvöð að hafa eitthvað með sér en þær sem vilja hafa eitthvað til að maula er frjálst að hafa eitthvað með sér.
Hlökkum til að sjá sem flestar kvenfélagskonur í Eyjafjarðarsveit úr kvenfélögunum þremur og þær sem ekki eru í félagi en eru að hugsa sig um mega gjarnan koma og vera með okkur.
Samvinnunefnd kvenfélaganna þriggja IHA (Iðunn, Hjálpin og Aldan).

Bókaklúbbur á Bókasafninu – smá breyting; verðum annan miðvikudag í mánuði í vetur kl. 16.30.
14. október, 11. nóvember og 9. desember, 13. janúar, 10. febrúar, 10. mars, 14. apríl og 12. maí.
Ákveðið var að velja höfund og síðan myndi hver og einn lesa bók eftir hann að eigin vali.
Höfundur septembermánaðar er Kristín Marja Baldursdóttir.
"Kristín Marja hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf sín, m.a. Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, verðlaun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna. Þá var bókin Karitas án titils tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs."
https://skald.is/skaldatal/194-kristin-marja-baldursdottir
Bókaklúbburinn er m.a. liður í Viku einmanaleikans https://vikaeinmanaleikans.is/
Þar getur að líta ýmsa aðra viðburði.
Allir velkomnir 😊
Kvenfélagið Iðunn.