Auglýsingablaðið

1353. TBL 29. september 2026

Auglýsingablað 1353. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 29. september 2026.

 


Sveitarstjórnarfundur
683. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 1. október og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Kvenfélagskvöldkaffi miðvikudaginn 30. sept. kl. 19:00 í Félagsborg - Allar kvenfélagskonur velkomnar og líka þær sem vilja verða kvenfélagskonur
😊
Kvenfélagskonur eru hvattar til að skrá sig fyrir happdrættið 😉
Það verður opið hús í Félagsborg frá kl. 19:00 miðvikudaginn 30. september og heitt á könnunni. Engin kvöð að hafa eitthvað með sér en þær sem vilja hafa eitthvað til að maula er frjálst að hafa eitthvað með sér.
Hlökkum til að sjá sem flestar kvenfélagskonur í Eyjafjarðarsveit úr kvenfélögunum þremur og þær sem ekki eru í félagi en eru að hugsa sig um mega gjarnan koma og vera með okkur.
Samvinnunefnd kvenfélaganna þriggja IHA 🤠 (Iðunn, Hjálpin og Aldan).

 


Messa í Hólakirkju sunnudaginn 4. október kl. 13:00
Verið velkomin fram í sveit næstkomandi sunnudag í hina fögru Hólakirkju. Kirkjukór Grundarsóknar syngur. Organisti er Þorvaldur Örn Davíðsson. Prestur er Aðalsteinn Þorvaldsson og meðhjálpari Sveinn Rúnar Sigmundsson.

 


Bleika slaufan – Október nálgast 💗🎀💗
Dekurdagar á Akureyri bjóða bleikar slaufur til sölu og allur ágóði af sölunni rennur beint til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
Lionsklúbburinn Sif í Eyjafjarðarsveit leggur málefninu lið líkt og undanfarin ár og tekur við pöntunum á slaufum til íbúa í Eyjafjarðarsveit.
Stefnt er að því að dreifa slaufunum um 1. Október og taka þær svo n iður um mánaðarmótin okt/nóv.
Pantanir berist á netfangið: lionsklubburinnsif@gmail.com

Getum við bætt efni síðunnar?