Auglýsingablað 1354. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 6. október 2026.

Áhugasamir og áhugavert í Eyvind
Ritnefnd óskar eftir efni og/eða ábendingar í okkar árlega blað um efni sem væri gott eða gaman að fjalla um, bæði nýtt og gamalt.
Eins óskum við eftir myndum í blaðið, forsíðumynd eða frá eða af einhverju áhugaverðu.
Hægt er að hafa samband við Benjamín á Ytri-Tjörnum í síma 899-3585 / tjarnir@simnet.is og Berglindi á Hrafnagili í síma 6936524 / berglind@esveit.is

Tilkynningar um tjón af völdum refa
Eyjafjarðarsveit hvetur bændur, landeigendur og aðra sem verða fyrir tjóni af völdum refa til að tilkynna það til sveitarfélagsins.
Mikilvægt er að upplýsingar um tjón af völdum refa séu skráðar og tilkynntar til Eyjafjarðarsveitar, svo yfirsýn fáist yfir umfang þess. Tilkynningar sveitarfélaga eru meðal þeirra upplýsinga sem nýttar eru við mat á umfangi tjóns og fyrirkomulagi refaveiða.
Í tilkynningu er óskað eftir upplýsingum um:
- nafn tjónþola og jörð,
- hvar og hvenær tjónið varð,
- eðli og umfang tjónsins, svo sem fjölda búfjár eða annað sem varð fyrir tjóni,
- áætlað fjárhagslegt tjón, eftir því sem unnt er,
- öðrum upplýsingum eða ljósmyndum sem geta varpað ljósi á atvikið.
Eyjafjarðarsveit hvetur til þess að tjón sé tilkynnt þótt ekki liggi fyrir nákvæmt mat á umfangi þess.
Tjónstilkynningar sendist til Eyjafjarðarsveitar á esveit@esveit.is.

Útsynningur hjá Freyvangsleikhúsinu - Frumsýning 9. október kl. 20:00
Útsynningur er glænýtt gamanverk eftir Hjálmar Arinbjarnarson, sem gerist í búningsklefa hjá áhugaleikfélagi úti á landi sem er með aðstöðu í félagsheimili sveitarinnar. Það er ýmislegt sem gengur á þegar hóp af fólki er troðið saman í lítið rými, rifrildi, sættir, skilningur og misskilningur, mis góð lykt og drasl útum allt. Svo ekki sé talað um glataða húsvörðinn sem á að vera að sjá um þetta félagsheimili.
Sýningar verða eingöngu í október og er miðasala á tix.is og í síma 857-5598.

Veturgömul hryssa skilaði sér ekki úr Sölvadal
Auglýsi eftir Láru frá Draflastöðum.
Veturgömul leirljós blesótt hryssa, hún ætti að vera örmerkt.
Átti að vera í Sölvadal en kom ekki niður í göngunum núna.
Endilega hafið samband ef þið hafið séð hana, s: 864-4463.

Kvenfélagið Iðunn - Haustfundur
Haustfundur verður föstudaginn 16. október kl. 19:00 í heimahúsi, sjá nánar í fundarboði/tölvupósti. Skráning á idunn@kvenfelag.is eða idunnhab@gmail.com í síðasta lagi 12. október.
Veitingar í boði. Minnum á happdrættið.
Nýjar konur velkomnar.
Hlökkum til að sjá sem flestar.
Stjórnin.