Auglýsingablaðið

1355. TBL 13. október 2026

Auglýsingablað 1355. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 13. október 2026.

 


Sveitarstjórnarfundur
684. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 15. október og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Póstkassar í hverfinu
Búið er að taka niður póstkassana sem voru fyrir göturnar Skólatröð, Laugartröð, Ártröð, Brekkutröð, Vallartröð, Skógartröð, Hjallatröð, Sunnutröð og Bakkatröð.

Þeir sem vilja nálgast sinn póstkassa geta sótt hann á gámasvæðið sem er opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 13-17.

Þau heimili sem eiga eftir að skrá sig fyrir póst í póstbox geta nálgast eyðublað í anddyri skrifstofu Eyjafjarðarsveitar eða sótt rafrænt á slóðinni https://www.esveit.is/static/files/Islandspostur/skraningareydublad-islandsposts-fyrir-allan-post-i-posbox.pdf

 


Menningars
jóður Eyjafjarðarsveitar auglýsir eftir umsóknum haustið 2026
Menningarsjóður Eyjafjarðarsveitar auglýsir eftir umsóknum í síðasta lagi þriðjudaginn 27. október vegna úthlutunar úr sjóðnum 1. nóvember næstkomandi.

Tilgangur Menningarsjóðs Eyjafjarðarsveitar er:

  • Að styrkja menningarverkefni í Eyjafjarðarsveit
  • Að leggja til framlag til kaupa á listaverkum fyrir Eyjafjarðarsveit
  • Að styrkja listamenn, félög og fræðimenn og aðra þá sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni
  • Að fjármagna þau sérverkefni sem sjóðsstjórn kann að ákveða hverju sinni.

Umsókn er send rafrænt á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar > Umsóknir > Umsókn um styrk til menningarmála.

Úthlutunarreglur sjóðsins er að finna hér á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.

 


Afreks- og hvatningarstyrkur Eyjafjarðarsveitar
Markmið afreks- og hvatninarstyrksins er að styðja ungt afreksfólk með lögheimili í Eyjafjarðarsveit til þátttöku í viðurkenndum alþjóðlegum verkefnum á sviði íþrótta og lista og mæta hluta af ferðakostnaði vegna slíkrar þátttöku. Styrkurinn er hvatningar- og viðurkenningarstyrkur en ekki almennur tómstundastyrkur. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 14 – 21 ára á því almanaksári sem verkefni fer fram sem og eiga lögheimili í Eyjafjarðarsveit við umsókn og þegar verkefni fer fram. Velferðar- og menningarnefnd fer yfir allar umsóknir en úthlutað er einu sinni á ári.

Umsóknarfrestur er 1. nóvember ár hvert.

Opið er fyrir umsóknir allt árið, hér á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar

 


Næfurhandverk - fræðsluerindi og opnun sýningar
Þjóðháttafélagið Handraðinn kynnir handverkskonuna Karin Lundholm. Karin er væntanleg hingað til lands til að kynna handverk úr næfur, sem er ytra lagið af berki birkis.

Karin flytur fræðsluerindi um næfrina í Laugarborg, sunnudaginn 25. október kl. 16, um leið og sýning á næfurhandverki verður formlega opnuð. Munirnir verða einnig til sölu.

Tvö námskeið verða haldin hér í Eyjafjarðarsveit dagana sem hún dvelur á landinu og bókuðust plássin hratt upp. Karin til halds og trausts er einnig handverkskonan Paulina Hermansson.

Karin hefur unnið með næfur í 60 ár, flutt fjöldann allan af fræðsluerindum, sett upp sýningar og kennt handverkið víða. Nytjahluti eins og körfur, brauðföt, hnífaslíður, platta undir potta er hægt að flétta úr næfur. Næfurin er endingargóð náttúruafurð sem er nýtileg til ýmissa hluta vegna einstakra eiginleika sem næfrin er gædd. Hún er vatnsþétt, einangrandi, sveigjanleg og hefur innbyggða fúavörn.

Sjón er söguríkari.
Frítt inn á fræðsluerindið og sýninguna sem verður einnig opin 26. okt - 1. nóv. á milli kl. 14 og 18.

Eyjafjarðarsveit og Kolbrún Ingólfsdóttir styrkja þessa viðburði.

Linkur á viðburðinn á facebooksíðu Handraðans: https://fb.me/e/585zi1QE1

 

Getum við bætt efni síðunnar?