Auglýsingablaðið

1356. TBL 20. október 2026

Auglýsingablað 1356. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 20. október 2026.


Lífið er konsert
– Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára afæli sínu með stórtónleikum í Hofi á Akureyri þann 24. október kl. 16:00. Sjá nánar á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar í viðburðadagatali. Miðasala á mak.is og tix.is

 


Næfurhandverk - fræðsluerindi og opnun sýningar

Þjóðháttafélagið Handraðinn kynnir handverkskonuna Karin Lundholm. Karin er væntanleg hingað til lands til að kynna handverk úr næfur, sem er ytra lagið af berki birkis.

Karin flytur fræðsluerindi um næfrina í Laugarborg, sunnudaginn 25. október kl. 16, um leið og sýning á næfurhandverki verður formlega opnuð. Munirnir verða einnig til sölu.

Tvö námskeið verða haldin hér í Eyjafjarðarsveit dagana sem hún dvelur á landinu og bókuðust plássin hratt upp. Karin til halds og trausts er einnig handverkskonan Paulina Hermansson.

Karin hefur unnið með næfur í 60 ár, flutt fjöldann allan af fræðsluerindum, sett upp sýningar og kennt handverkið víða. Nytjahluti eins og körfur, brauðföt, hnífaslíður, platta undir potta er hægt að flétta úr næfur. Næfurin er endingargóð náttúruafurð sem er nýtileg til ýmissa hluta vegna einstakra eiginleika sem næfrin er gædd. Hún er vatnsþétt, einangrandi, sveigjanleg og hefur innbyggða fúavörn.

Sjón er söguríkari.
Frítt inn á fræðsluerindið og sýninguna sem verður einnig opin 26. okt - 1. nóv. á milli kl. 14 og 18.

Eyjafjarðarsveit og Kolbrún Ingólfsdóttir styrkja þessa viðburði.

Linkur á viðburðinn á facebooksíðu Handraðans: https://fb.me/e/585zi1QE1

 


Messa í Munkaþverárkirkju sunnudaginn 25. október

Verið velkomin til kirkju komandi sunnudag kl. 13:00. Kirkjukór Grundarsóknar syngur. Organisti er Þorvaldur Örn Davíðsson. Prestur er Aðalsteinn Þorvaldsson og meðhjálpari Kristín Kolbeinsdóttir.

 


Útsynningur hjá Freyvangsleikhúsinu

Útsynningur er glænýtt gamanverk eftir Hjálmar Arinbjarnarson, sem gerist í búningsklefa hjá áhugaleikfélagi úti á landi sem er með aðstöðu í félagsheimili sveitarinnar. Það er ýmislegt sem gengur á þegar hóp af fólki er troðið saman í lítið rými, rifrildi, sættir, skilningur og misskilningur, mis góð lykt og drasl útum allt. Svo ekki sé talað um glataða húsvörðinn sem á að vera að sjá um þetta félagsheimili.

Næsta sýningarhelgi og jafnframt sú síðasta, verður 30.-31. október.

Miðasala á tix.is eða í síma 857-5598.

Getum við bætt efni síðunnar?