Auglýsingablaðið

1357. TBL 27. október 2026

Auglýsingablað 1357. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 27. október 2026.


Sveitarstjórnarfundur
685. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 29. október og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Næfurhandverk – Nýjar upplýsingar um opnun sýningar
Sýning í Laugarborg 27.-31. október kl. 14–18.
Sýning í Félagsborg 1. nóvember kl. 14–18.

Tvö námskeið verða haldin þessa daga og eru örfá sæti laus á helgarnámskeiðið. Upplýsingar og skráning hjá Sigríði Hrefnu í tölvupósti á sigga@hjalmsstadir.com 

Þjóðháttafélagið Handraðinn kynnir handverkskonuna Karin Lundholm. Karin kynnir og sýnir handverk úr næfur, sem er ytra lagið af berki birkis. Einnig mun Karin kenna handverkið á námskeiðunum og henni til halds og trausts er handverkskonan Paulina Hermansson.

Karin hefur unnið með næfur í 60 ár, flutt fjöldann allan af fræðsluerindum, sett upp sýningar og kennt handverkið víða. Nytjahluti eins og körfur, brauðföt, hnífaslíður, platta undir potta er hægt að flétta úr næfur. Næfurin er endingargóð náttúruafurð sem er nýtileg til ýmissa hluta vegna einstakra eiginleika sem næfrin er gædd. Hún er vatnsþétt, einangrandi, sveigjanleg og hefur innbyggða fúavörn.

Sjón er söguríkari. Munirnir verða einnig til sölu.

Eyjafjarðarsveit og Kolbrún Ingólfsdóttir styrkja þessa viðburði.

Linkur á á facebooksíðu Handraðans: https://www.facebook.com/handradi

 


Útsynningur hjá Freyvangsleikhúsinu
Útsynningur er glænýtt gamanverk eftir Hjálmar Arinbjarnarson, sem gerist í búningsklefa hjá áhugaleikfélagi úti á landi sem er með aðstöðu í félagsheimili sveitarinnar. Það er ýmislegt sem gengur á þegar hóp af fólki er troðið saman í lítið rými, rifrildi, sættir, skilningur og misskilningur, mis góð lykt og drasl útum allt. Svo ekki sé talað um glataða húsvörðinn sem á að vera að sjá um þetta félagsheimili. Næsta sýningarhelgi og jafnframt sú síðasta, verður 30.-31. október. Miðasala á tix.is eða í síma 857-5598.

 


Björgum Kritnesspítala – stofnun félagasamtaka 1. nóvember
Þann 1. nóvember næstkomandi verða liðin 99 ár frá vígslu Kristneshælis í Eyjafirði. Eins og alþjóð veit er ástand hússins slæmt og búið að loka endurhæfingunni. Við erum ansi mörg sem viljum leggja okkar á vogarskálarnar svo gert verði við húsið og endurhæfingunni haldið áfram á þessum fallega og heilandi stað með skóginn fyrir ofan og sérstaka endurhæfingarsundlaug innanhúss. Endurhæfingin er mikilvæg fyrir allt Norður- og Austurland.

Liður í þeirri baráttu er að stofna félagasamtökin Björgum Kristnesspítala þann 1. nóvember kl. 17 á Hælinu setri um sögu berklanna. Athöfnin hefst fyrir utan með varðeldi og heitu kakói og svo fer stofnfundur fram með samþykktum félagsins og kosningu í stjórn. Markmið félagsins er að þrýsta á þar til bær yfirvöld að halda áfram með endurhæfingu á Kristnesi og byrja að safna fyrir endurbótum.

Allir velkomnir! Einstaklingar, fulltrúar félagasamtaka, stofnana og fyrirtækja. Saman getum við flutt fjöll!

Hælið setur um sögu berklanna.

Getum við bætt efni síðunnar?