Auglýsingablaðið

1358. TBL 03. nóvember 2026

Auglýsingablað 1358. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 3. nóvember 2026.

 


Allra heilagra messa í Möðruvallakirkju sunnudaginn 8. nóvember kl. 20:00
Kirkjukór Grundarsóknar syngur. Organisti og kórstjóri er Þorvaldur Örn Davíðsson. Prestur Jóhanna Gísladóttir og meðhjálpari Helga Berglind Hreinsdóttir. Í messunni minnumst við þeirra sem kvatt hafa þennan heim og tendrum á kertum þeim til minningar.
Verið öll hjartanlega velkomin!

 


eiðalýsing 2026
Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi stendur fyrir leiðalýsingu í kirkjugörðum í Eyjafjarðarsveit á aðventunni. Lýst er frá fyrsta sunnudegi í aðventu, þeir sem hafa leigt krossa undanfarin ár þurfa aðeins að tilkynna ef þeir hyggjast hætta lýsingu, eða nýr greiðandi er tekinn við, annars eru krossar settir á sömu leiði og síðast.
Gjald fyrir hvern kross er kr. 4.300.- Pantanir og breytingar skal tilkynna í síma 984-0283 Hjörtur eða 864-6444 Stefán.

 


Bókaklúbbur
Næsti hittingur verður miðvikudaginn 11. nóvember á bókasafni Eyjafjarðarsveitar kl. 16:30. Í október var ákveðið að lesa bók að eigin vali eftir höfundinn Jónínu Leósdóttur og er þar af nógu að taka.
Verið öll velkomin.

 


Iðunnarkvöld
Þann 18. nóvember nk. kl. 20 verður Iðunnarkvöld í fundarherbergi Laugarborgar. Notaleg samverustund yfir handavinnu og/eða öðru skemmtilegu og smá veitingum. Núverandi og tilvonandi Iðunnarkonur takið endilega kvöldið frá 😊
Nánar auglýst þegar nær dregur.
Nýjar konur velkomnar (við erum orðnar 30 talsins og getum ennþá blómum á okkur bætt ❤).
Kvenfélagið Iðunn.

Getum við bætt efni síðunnar?