Auglýsingablaðið

1359. TBL 10. nóvember 2026

Auglýsingablað 1359. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 10. nóvember 2026.


Sveitarstjórnarfundur
686. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 12. nóvember og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Opinn fundur með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit um viðburðahald
Eyjafjarðarsveit boðar til opins fundar með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit þar sem rætt verður um viðburðahald í sveitarfélaginu. Umræðuefnið verður:

  • Hvað viðburðir eru í gangi í dag?
  • Hugmyndir félaga að viðburðum og verkefnum.
  • Hvað geta félögin lagt af mörkum.
  • Samstarf, tímasetningar og leiðir.

Fulltrúar SSNE munu stýra umræðum og í lok fundar verða næstu skref ákveðin í sameiningu.

Fundurinn verður haldinn í Félagsborg, miðvikudaginn 18. nóvember kl. 19.30. Félögin eru hvött til þess að senda sína fulltrúa á fundinn og taka þátt í mótun hugmynda að eflingu viðburðahalds í sveitarfélaginu.

 


Leiðalýsing 2026
Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi stendur fyrir leiðalýsingu í kirkjugörðum í Eyjafjarðarsveit á aðventunni. Lýst er frá fyrsta sunnudegi í aðventu, þeir sem hafa leigt krossa undanfarin ár þurfa aðeins að tilkynna ef þeir hyggjast hætta lýsingu, eða nýr greiðandi er tekinn við, annars eru krossar settir á sömu leiði og síðast.
Gjald fyrir hvern kross er kr. 4.300.- Pantanir og breytingar skal tilkynna í síma 894-0283 Hjörtur eða 864-6444 Stefán.

 


Bókaklúbbur
Á morgun miðvikudaginn 11. nóvember verður bókaklúbbur á bókasafni Eyjafjarðarsveitar kl. 16:30. Í október var ákveðið að lesa bók að eigin vali eftir höfundinn Jónínu Leósdóttur og er þar af nógu að taka.
Verið öll velkomin.

 


Iðunnarkvöld
Þann 18. nóvember nk. kl. 20 verður Iðunnarkvöld í fundarherbergi Laugarborgar. Notaleg samverustund yfir handavinnu og/eða öðru skemmtilegu og smá veitingum. Núverandi og tilvonandi Iðunnarkonur takið endilega kvöldið frá 😊
Nýjar konur velkomnar.
Kvenfélagið Iðunn.

 


Marísól og leitin að gleðinni
verður frumsýnt í Freyvangi þann 20. nóv. og verða svo sýningar allar helgar fram að jólum
Marísól og leitin að gleðinni er frumsamið barnaverk eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttur með frumsamdri tónlist eftir Eirík Bóasson.

Verkið er hugljúf jólasaga um hana Marísól sem er 10 ára stelpa sem er mjög leið yfir komandi jólum, því pabbi hennar sem er sjómaður þarf að vinna yfir jólin.

Þegar hún er sofnuð á þorláksmessukvöld þá vaknar uppáhalds bangsinn hennar, hann Viktor, til lífsins og fer með hana í ferðalag til að leita að gleðinni.

Þau hitta allskonar fólk á leið sinni, sem hafa öll mismunandi sýn á hvar gleðina er að finna en þegar á heildina er litið þá leynist gleðin í litlu hlutunum, í því sem við gerum fyrir aðra og kemur líklega ávallt frá hjartanu.

Allar nánari upplýsingar og miðasala eru á tix.is, á feisbúkksíðu Freyvangsleikhússins eða í síma 857-5598.

Getum við bætt efni síðunnar?