Bleika slaufan – Október nálgast

Dekurdagar á Akureyri bjóða bleikar slaufur til sölu og allur ágóði af sölunni rennur beint til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Lionsklúbburinn Sif í Eyjafjarðarsveit leggur málefninu lið líkt og undanfarin ár og tekur við pöntunum á slaufum til íbúa í Eyjafjarðarsveit.

Stefnt er að því að dreifa slaufunum um 1. október og taka þær svo niður um mánaðarmótin okt/nóv.

Pantanir berist á netfangið: lionsklubburinnsif@gmail.com