Bókaklúbbur á Bókasafninu – í vetur verðum við annan miðvikudag í mánuði í vetur kl. 16.30.
14. október, 11. nóvember og 9. desember, 13. janúar, 10. febrúar, 10. mars, 14. apríl og 12. maí.
Ákveðið var að velja höfund og síðan myndi hver og einn lesa bók eftir hann að eigin vali.
Höfundur septembermánaðar er Kristín Marja Baldursdóttir.
"Kristín Marja hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf sín, m.a. Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, verðlaun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna. Þá var bókin Karitas án titils tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs."
https://skald.is/skaldatal/194-kristin-marja-baldursdottir
Bókaklúbburinn er m.a. liður í Viku einmanaleikans https://vikaeinmanaleikans.is/
Þar getur að líta ýmsa aðra viðburði.
Allir velkomnir 😊
Kvenfélagið Iðunn.