Bókaklúbbur - Allir velkomnir

Nóvemberbókin er Míkadó eftir Gerði Kristný sem kom út í haust. Hér er hægt að lesa um bókina https://skald.is/greinar/mikado/

Forlagið hefur þetta að segja í stuttu máli um bókina:

„Líf mitt var eins og að spila míkadó þar sem hver prjónninn var veiddur á fætur öðrum án þess að hrúgan hryndi.“

Fjölskylda ellefu ára stelpu reynir hvað hún getur að liðast ekki í sundur. Dagarnir fara í að sýna heiminum að allt sé í lagi. Á meðan stelpan fetar sig fram hjá gildrum á heimilinu gerast ævintýrin utan þess.

Í skáldsögunni Míkadó segir Gerður Kristný sögu frá Reykjavík níunda áratugarins. Með ísmeygilegri kímni og hnífskörpu innsæi er dregin upp lýsing á heimi sem stundum virðist kæfandi en stundum barmafullur af möguleikum.

Gerður Kristný hefur fyrir löngu skipað sér í hóp fremstu höfunda landsins. Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir skrif sín, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin, tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar."
https://forlagid.is/vara/mikado/