Fyrsta Iðunnarkvöld haustsins

Fyrsta Iðunnarkvöld haustsins verður haldið í Félagsborg þriðjudaginn 15. september kl. 19:00.
Við fáum góða gesti á fundinn en hjónin Inger og Eiríkur frá Syðra-Holti í Svarfaðardal mæta til okkar og segja frá starfi sínu við lífræna ræktun.
Á Syðra Holti er rekið fjölskyldurfyrirtæki þar sem ræktun og virðing fyrir náttúrunni fara saman. Þar ræktar fjölskyldan lífrænt vottað íslenskt grænmeti, safnar villtum jurtum og vinnur ýmsar afurðir úr uppskerunni.
Þau koma með sýnishorn af framleiðslu sinni sem verða til sölu að kynningunni lokinni.
Endilega takið með gesti.
Hlökkum til að sjá ykkur allar.